19.11.1946
Sameinað þing: 14. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í D-deild Alþingistíðinda. (4574)

65. mál, húsnæði handa rektor Menntaskólans í Reykjavík

Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason):

Herra forseti. Ég hefði raunar heldur kosið, að brtt. hv. meiri hl. fjvn., sem nú var tekin aftur, hefði verið samþ. Og ég taldi hagkvæm kaupin á húsinu nr. 39 við Garðastræti. — Hins vegar er fyrir mér aðalatriðið, að hægt sé að sjá rektor menntaskólans fyrir íbúð nú þegar, og geri ég mig tiltölulega ánægðan með þessa till., sem hv. fjvn. hefur komið sér saman um.