16.01.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í D-deild Alþingistíðinda. (4606)
115. mál, innflutningur nýrra ávaxta
Katrín Thoroddsen:
Þessi till., sem við hv. 11. landsk. berum fram, er á þá leið, að Alþ. álykti að fela ríkisstj. að annast um, að innflutningur nýrra ávaxta verði aukinn svo og skipulagður, að landsmenn eigi ávallt kost á einhverri tegund þeirra.
Hér er hvorki um stórmál né nýmæli að ræða, en þó þess vert, að Alþ. láti sig það skipta. Ég hygg, að hv. þm. muni minnast þess flestir hverjir, að við höfum séð og heyrt tilmæli úr ýmsum áttum undanfarinn áratug a.m.k. um að auka innflutning nýrra ávaxta, svo að við flm. erum ekki ein um þessa skoðun. Það eru einkum félagsmálasamtök kvenna og lækna, sem hafa látið þessi mál sig skipta, og það er von, að þeir aðilar, sem einkum hafa áhuga á heilbrigðis- og manneldismálum, láti það til sín taka og sé mjög í mun, að Íslendingar fái að njóta þeirrar heilsugjafar, sem nýir ávextir eru. Það er ekki ofmælt, að nýir ávextir séu sannkallaður heilsugjafi. Þeir teljast til þeirra fæðutegunda, sem hafa heilsuverndargildi. Neyzla þeirra bæði viðheldur líkamlegu heilbrigði og eflir viðnámsþrótt gegn sliti og sóttum. Næringargildi ýmissa tegunda heilsuverndarfæðu er mjög mismun. andi. Hollusta nýrra ávaxta byggist einkum á fjörefnamagni þeirra. Sérstaklega er okkur eftirsóknarvert c-vítamín, sem okkur skortir einkum á útmánuðum og á sök á margs konar vanheilsu og sleni. Þó að orkugjöf ávaxtanna sé kannske heldur rýr, rýrir það ekki gildi þeirra, og sumir ávextir eru hreinn undirstöðumatur. Þeir eru bragðgóðir flestir og lystugir og fallegir útlits, en það hefur mikið gildi, þegar um lystarlausa sjúklinga er að ræða, og trefjaefni ávaxtanna hjálpar oft meltingunni á mjög hagkvæman hátt. Þá er það líka ótalinn kostur á ávöxtunum, hvað framreiðsla þeirra er auðveld. Það er ekki annað en bera þá á borð, og það kunna húsmæður, sem eru önnum kafnar, vel að meta, ef þær eiga þeirra völ, en það hefur verið allt of stopult, svo að það má heita merkisviðburður, ef þeir hafa verið fluttir til landsins. Að vísu munu nú síðan fyrir jól hafa verið ávextir á boðstólum í flestum matvörubúðum, a.m.k. í Reykjavík, en það rýrir ekki gildi þessarar þáltill., því að bæði er það, að hér mun vera um stundarfyrirbrigði að ræða, jólaávextina svo nefndu, og svo var hitt, að innflutningur mun nú hafa verið með meira móti og mikið af þessum ávöxtum, sem komu, var skemmt og lélegt. Því er það, að sú vatill., sem hv. þm. S-Þ. hefur skeytt hér aftan við, á fyllilega rétt á sér og jafnvel álitamál, hvort ekki ætti að binda leyfisveitingar á fleiri vörum við gæðin. Við flm. getum því fyllilega samþ. þessa vatill.
Kunnáttumenn á sviði manneldismála halda fram, og færa fullgild rök fyrir, að I/5 hluti daglegrar fæðu ætti að vera ávextir og grænmeti, en það er mjög langt í land, að svo sé hjá okkur enn í því efni, en að því ber að stefna, og þessi till. er spor í þá átt, og vænti ég því, að hún verði samþ.