16.01.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í D-deild Alþingistíðinda. (4607)
115. mál, innflutningur nýrra ávaxta
Sigurður Kristjánsson:
Ég kvaddi mér ekki hljóðs af því, að ég efist um, að þessi till. verði samþ., heldur af því, að það hefur verið svo mikil tregða á að fá þessum málum hrundið í viðunanlegt horf, og ég vil gjarnan, að hæstv. ríkisstj. viti, að það sé nokkuð sterkur vilji bak við þessa till.
Það er kunnugt, að bæði frá læknastéttinni og miklu víðar að hafa komið margar áskoranir um að bæta úr ávaxtaleysinu. Gjaldeyrisskorti hefur mjög verið kennt um, að ekki hafi fengizt fluttir inn ávextir, en þó virðist það mjög hafa ráðið, að stjórnarvöldin hafi litið á þennan innflutning sem ekki alls kostar æskilegan hlut. Það var a.m.k. einu sinni tekin upp sú regla að heimta, að menn hefðu lyfseðil frá lækni, ef þeir ættu að fá ávexti, og þá af mjög skornum skammti. Þetta bendir til þess, að þetta hefur þótt mjög hættulegur hlutur. Ég held, að sams konar reglur hafi líka verið teknar upp um barnamjólk.
Þetta, að það skyldi þurfa að fá resept hjá lækni til að fá að kaupa ávexti handa börnum og sjúklingum, sýnir mjög rangsnúinn hugsunarhátt í þessu efni, og verður að reyna að útrýma þeirri villu.
Ég held, að það sé ágætt dæmi um ástandið í þessu efni, sem ég rak mig á nú fyrir nokkru síðan. Ég sá stillt út í búðarglugga ávöxtum, sem nú sjást ekki lengur hér. Það voru bananar. Þeir voru að sönnu ekki vel út lítandi. Þessi ávaxtategund var seld hér áður fyrir 3–4 krónur kílóið. Ég fór inn og spurði, hvað þeir kostuðu. Sjötíu krónur kílóið. Ég bað stúlkuna að endurtaka þetta. Jú, sjötíu krónur kílóið. Ég spurði hana, hver legði þetta verð á. Verðlagsnefnd, sagði hún. Góður vitnisburður fyrir hana það. Þetta sýnir, að menn hafa hér af rælni, kannske að gamni sínu, kannske af fíflaskap, farið að rækta svona ávexti, sennilega við jarðhita, því að ég geri ráð fyrir, að þessir ávextir hafi ekki verið innfluttir, reyndar litu þeir ekki vel út. Og svo leyfa menn sér að gera þá smán að bjóða þetta til sölu fyrir sjötíu krónur. Ég held, að það væri ekki til mikils sóma. ef ferðamenn gengju inn í svona búð, þegar þeir sæju svona ávexti, og spyrðu um verðið. Það er til smánar fyrir þjóðina að láta þetta sjást. Það gefur ljóta mynd af, hvernig ástandið er, að menn skuli voga sér að bjóða þessa vöru fyrir sjötíu krónur, og það er til smánar fyrir menn að kaupa slíkt.
Ég vil líka leggja áherzlu á það, sem hv. frsm. benti á, en það er, hvernig tekst til, ef stíflan er tekin úr með innflutninginn. Hér hafa nú ekki sézt ávextir í háa herrans tíð. Svo átti hér að gera okkur jólaveizlu og flytja inn epli handa okkur. Ég hef engan mann fyrir hitt, sem hefur ekki verið algerlega undrandi yfir því, að það skuli hafa verið hægt að finna nokkurn afkima, sem framleiddi svona lélega vöru. Þetta hefur innflytjendunum samt tekizt að grafa upp til að bjóða okkur um jólin. Það er háski fyrir þjóðfélagið, að það sé fyrirbyggt, að menn geti fengið svona góða fæðu, og sérstaklega vítavert, að ef eitthvað er lítils háttar linað á þessum höftum, þá skuli það vera gert á þann hátt, að ávextirnir séu engum manni bjóðandi.