26.02.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í D-deild Alþingistíðinda. (4639)

75. mál, bætt starfsskilyrði á Alþingi

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Í sambandi við þær hugmyndir, sem fram hafa komið um það, hvernig leysa skyldi það vandamál að bæta starfsskilyrði Alþ., vil ég minnast á þá hugmynd, sem getið er í grg., að nota að einhverju leyti núverandi menntaskólahús fyrir starfsemi Alþ. Ég býst við, að öllum hv. þm. sé það ljóst, að það eru alveg óviðunandi skilyrði, sem Alþ. býr nú við. Ég býst við, að ekkert þing í nágrannalöndum okkar búi við eins skilyrði og okkar þing býr nú við. Slíkt ástand er alveg óviðunandi, eins og það er hér hjá okkur, a.m.k. þegar fjárhagur þjóðarinnar verður þannig, og starf Alþ. svo mikið, að það ætti að vera hægt að skapa því betri starfsskilyrði. — Nú hafa komið fram hugmyndir um, að ef til vill yrði, áður en langt um líður, byggt nýtt þinghús. Ég felli mig illa við þá hugmynd. Ég álít, að hér í húsinu eigi Alþ. að vera, meðan húsið getur staðið, og ég held, að við eigum að halda sem bezt að þeim gömlu traditionum, sem þar eru. Það, sem þyrfti að tengjast við þetta hús, ef það þyrfti að auka það, þyrfti að vera í miðbænum. Nú er það svo, að menntaskólahúsið er í raun og veru eina húsið, sem vegna sögu sinnar er tengt þinginu. Og það er engin stofnun, að menntaskólanum undanskildum, sem á þá kröfu til þessa húss, sem Alþ. á. Ef við ættum nokkurn tíma að taka núverandi menntaskólahús í þjónustu annars en menntaskólans, þá á að taka það í þjónustu Alþ. Ef þjóðin er svo rík, að hún gæti byggt nýtt menntaskólahús, ætti Alþ. að gera kröfu til að fá aftur til umráða þessa byggingu, sem er svo sögurík í sambandi við okkar þing. Ég legg þess vegna til, að í sambandi við þessa þáltill., sem hér liggur fyrir, þá komi þessi hugmynd mjög alvarlega til athugunar.

Við þyrftum að fá þetta hús fyrir okkur, en forseti lýðveldisins þyrfti að fá hús fyrir sig, og ég sé ekki betri skrifstofur fyrir hann en menntaskólann. Það er hægt að hafa gamla þjóðfundarsalinn sem þann glæsilegasta móttökusal, sem hægt er að fá, þegar við fáum heimsóknir frá erlendum gestum. Við vitum, hvað hægt er að skreyta þann sal vel og hve handhægt er að koma fyrir skreytingu við uppganginn að skólanum og kringum hann. Ef forseti og Alþ. hefðu gamla menntaskólann til umráða, væri hægt að bæta mikið úr þeim skorti, sem er á starfsskilyrðum og húsakynnum þingsins.

Það er sá hængur á, að gamli menntaskólinn er timburhús. Það mætti athuga að gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir brunahættu, t.d. að smyrja tréð eða ganga frá þessu húsi, svo að það gæti ekki brunnið. Það ætti að vera sjálfsagt af okkur að gera ýtrustu tilraun til þess að varðveita þetta hús, vegna þess að það er varla nokkurt hús í Reykjavík að alþingishúsinu undanteknu, sem aðrar eins minningar eru tengdar við. Og ef við hugsum fram í framtíðina, hugsum um það, að með vaxandi efnum getum við byggt myndarlegar en við gerum nú, þá kemur okkur ekki til með að skorta veglegar og fallegar byggingar, en okkur kemur til með að skorta gamlar byggingar, sem tengdar eru við sögu okkar. Það er sú fátækt, sem við finnum mest til, þegar við komum til annarra borga og sjáum þær byggingar, sem aðrar þjóðir eiga, sem tengdar eru við þeirra sögu, að við skulum engar slíkar byggingar eiga. Við eigum okkar fögru náttúru og Þingvelli, en ekki byggingar, og fyrir þá kynslóð, sem kemur til með að vaxa upp í Reykjavík, er það nauðsynlegt að gera að því gangskör að varðveita þær byggingar, sem við eigum, þó að okkur finnist dýrt og ópraktískt að láta þær standa.

Ég held, þegar þessi tillaga verður samþ., að æskilegt væri að tekið væri til athugunar, hvort ekki er hægt að tengja menntaskólann við Alþ. vegna minninganna, sem við hann eru bundnar, taka þetta hús aftur til afnota fyrir forseta lýðveldisins og fyrir Alþ. Ég held, að með þessu mætti bæta starfsskilyrðin og tengja saman það, sem að nokkru leyti er okkar tradition.

Við flm. höfum minnzt á þetta í grg., en ég hef viljað minna á það, til þess að það fengi því betri athugun.