28.02.1947
Sameinað þing: 33. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (4662)

181. mál, sumartími

Hermann Guðmundsson:

Herra forseti. — Ég vil þakka hæstv. forseta Sþ. fyrir sérstaklega góða afgreiðslu á þessu máli svo og hv. allshn. Þá vil ég leyfa mér að bera fram brtt. við till. hv. allshn. þess efnis, að í stað „fyrsta dag aprílmánaðar“ komi: fyrsta sunnudag aprílmánaðar. Það var rétt, sem kom fram hjá hv. 1. flm., að það er óheppilegt að flýta klukkunni í miðri viku, en svo yrði það, ef þetta yrði bundið við 1. apríl n.k., og er því hentugra að binda þetta við helgi.

Varðandi ræðu hæstv. dómsmrh., er það rétt hjá honum, að seinkun klukkunnar á haustin komi sér illa fyrir verkamenn. Þeir hafa orðið að vinna í myrkri, svo að ástæða væri til að breyta reglugerðinni, ekki einungis hvað snertir að færa klukkuna fram, heldur einnig hvenær eigi að færa hana aftur. — Ég skal viðurkenna, að þessi till. kemur seinna fram en æskilegt hefði verið, en vegna þess, hversu við flm. urðum seint fyrir, yrði hér um bráðabirgðalausn að ræða, ef till. og brtt. yrðu samþykktar.