28.02.1947
Sameinað þing: 33. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (4666)

181. mál, sumartími

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Það hefur komið í ljós, að hv. flm. þessarar till. hafa ekki haft tíma til þess að átta sig á því, hvaða dagur sé heppilegastur til að seinka klukkunni aftur á haustin. Enn fremur er ágreiningur um það, hvort það eigi að færa klukkuna fram á vorin hinn fyrsta dag aprílmánaðar eða fyrsta sunnudag aprílmánaðar eða fyrsta sunnudag maímánaðar. Mér finnst því rétt, að hæstv. ríkisstj. fái málið til meðferðar, þar eð það virðist svo flókið, og legg til, að því verði vísað til hennar.