13.11.1946
Sameinað þing: 11. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í D-deild Alþingistíðinda. (4711)
53. mál, meðferð opinberra mála
Hermann Jónasson:
Ég þarf nú raunar ekki mörgu að svara, en benda aðeins á staðreyndir. Síðasti ræðumaður var nú ekki allt of rökfastur af prófessor í lögfræði að vera. Það er sjálfsagt alveg rétt, að hann hafi upphaflega flutt þetta mál sökum þess, að honum hafi þótt ákæruvaldinu vera misbeitt, og hann sýndi áhuga sinn. Ég taldi hins vegar ekki óeðlilegt, að einkamálin væru fyrst tekin til meðferðar og þeim gerbreytt. Þetta frv., sem hér er um að ræða, var samið af n. sérfróðra manna, er ég skipaði, en héraðsdómarar vildu fá málið til umsagnar, áður en það væri lögfest, og samkv. kröfu þeirra var það sent þeim, og var það ekki óeðlilegt, þar eð það lagði þeim á herðar nýjar vinnuaðferðir, a.m.k. var það sent til þeirra, og það var ekkert undarlegt, þótt það væri ekki heimtað úr höndum þeirra. Hitt var nægileg athöfn og yfirlýsing af minni hálfu að skipa n. til að undirbúa þetta mál, er síðan var lagt hér fyrir þingið sem hennar vilji, þótt það næði ekki samþykki þá. Ég er því eini dómsmrh., er hefur látið semja frv. um þetta mál og sinnt því þannig í verki, þótt afgreiðsla þess yrði slík sem hún varð sökum atburða, er síðar gerðust. Að þessu slepptu hefur áhuginn fyrir þessu máli verið bundinn við stjórnarandstöðuna, en ekki stjórnaraðstöðuna, og hv. þm. Snæf. ætti að minnast þess, að þótt hann sé prófessor og kennari í þessum málum, hefur hann ekki neytt færis til að sýna áhuga sinn á þessu máli undanfarin ár með því að gerast flm. þess, eins og líklegt hefði þó mátt þykja af orðum hans að dæma. Nei, áhugi hans hefur ekki sýnt sig á undanförnum árum, en ég lét leggja þetta mál fram, á meðan ég var sjálfur dómsmrh. Hann virðist nú aftur vera orðinn ánægður, þó að ekkert sé gert í málinu, svo að sannleikurinn er allur annar en hann hélt fram í ræðu sinni. Ég vil halda því fram, að ákæruvaldinu hafi ekki verið misbeitt í minni dómsmálaráðherratíð í pólitísku skyni, og ég hygg, að erfitt verði að sanna, að svo hafi verið. Ef til vill var það vegna þess, að ég hafði áður sinnt dómarastörfum og tileinkað mér það hugarfar, sem allir dómarar hljóta að hafa. En þó að ég viti ekki til, að ákæruvaldinu hafi þá verið misbeitt, er þetta eitt hið þarfasta mál, og má nefna dæmi því til sönnunar í tugatali. Og þótt ég nefni ekki einstök dæmi, þá er til það atferli varðandi málafylgju og rannsókn opinberra mála hér, er verða mun sá minnisvarði lélegs réttarfars, er seint fyrnist. T.d. nefni ég hér aftur mál kaupfélagsstjórans í Hornafirði og heildsalamálin, sem er svo einstakt réttarfarshneyksli, að þess munu fá dæmi í nokkru landi. Ég er svo kunnugur réttarfari seinni tíma, að ég er fús til að ræða þetta nánar, ef þess væri óskað.