26.02.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (4718)
53. mál, meðferð opinberra mála
Frsm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Ég hafði áður gert grein fyrir afstöðu hv. allshn. til þessa máls. Nú er það hins vegar svo, að hv. flm. málsins er fjarverandi. Það eru vinsamleg tilmæli hans til hæstv. forseta, að málinu verði ekki fram haldið í fjarvist hans, því að hann mun hafa forsetaleyfi til að vera fjarverandi.