03.03.1947
Efri deild: 83. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

47. mál, sauðfjársjúkdómar

Pétur Magnússon:

Það virðast allir sammála um, að löggjöf um innflutning sauðfjár þurfi rækilegrar athugunar við. Ég tel, að það atriði eigi vel heima í þessu frv., en eftir þá meðferð, sem frv. hefur fengið í Nd., er það svo limlest, að litlu skiptir, hvort það nær fram að ganga. Mér finnst því, að innflutningur sauðfjár ætti að verða tekinn til sérstakrar athugunar og vænti. að hv. landbn. geri það. Ef það verður ekki, þá verða þm. að fá nægan tíma til að athuga málið, og mælist ég því til þess við hæstv. forseta, að hann fresti umr.