17.04.1947
Sameinað þing: 43. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í D-deild Alþingistíðinda. (4722)
53. mál, meðferð opinberra mála
Frsm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Allshn. flytur á þskj. 525 nýjar brtt. við hina upphaflegu till. Jafnframt er ætlun n. að taka aftur brtt. þær, sem hún upphaflega flutti á þskj. 347. Það stendur þannig á þessum nýju brtt., að hæstv. dómsmrh. gerði nokkrar aths. með þeim óskum til n., þegar þetta mál var til umr. hér á Alþ. Eru þessar breyt. fólgnar í því frá því, sem n. upphaflega lagði til, að lagt er til, að endurskoðunin, sem skorað er á ríkisstj. að láta fara fram, verði ekki bundin við till. þær um meðferð opinberra mála, sem fluttar voru í Ed. 1939. Fannst hæstv. dómsmrh. eðlilegt, og hefur n. fallizt á það sjónarmið, að ekki væri miðað við endurskoðun á þessum till., sem eru sumar hverjar orðnar úreltar. N. leggur þess vegna til, að till. á þskj. 79 verði samþ. með þeirri breyt., sem felst í brtt. n. á þskj. 525.