13.02.1947
Sameinað þing: 29. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í D-deild Alþingistíðinda. (4749)

171. mál, eftirlit með verksmiðjum og vélum

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Hér hefur verið rætt um ófullnægjandi eftirlit með verksmiðjum og vélum. Þetta er ekki því að kenna, að ekki sé veitt nægilegt fé til þessarar stofnunar á fjárl. Síðan ég tók við störfum í fjvn., hefur ekki verið synjað neinni beiðni um fjárveitingar til þessara starfa. Ég hygg, að nú séu veittar 95 þús. kr. til þessara starfa, og ég veit ekki til, að það hafi vakið nokkra andúð að leggja fram fé til þessara framkvæmda. Það er því ekki fjvn. að kenna, þótt fé vanti í þessu skyni. Hitt er svo rétt hjá hv. flm., og það heyrir undir viðkomandi ráðh., að sá maður, sem þetta starf hefur haft á hendi, hefur verið látinn annast margs konar starfsemi aðra bæði fyrir ríkið og einstaklinga. Ég hygg, að samkv. núgildandi l. geti þessi maður látið sýslumenn og tollstjóra innkalla skoðunargjaldið hjá viðkomandi verksmiðjum, án þess að skoðun fari fram, og mér er kunnugt um það, að t.d. síðustu 4 ár hefur ákveðin verksmiðja orðið að greiða þung skoðunargjöld, án þess að nokkur skoðunarmaður hafi komið inn í verksmiðjuna á því tímabili. Það er náttúrlega þörf á að breyta þessu, og það heyrir undir það ráðuneyti, sem með þessi mál fer. Ég er algerlega á móti hæstv. ráðh. í því, að þessi störf séu ákaflega ólík, hvað snertir skip og verksmiðjur. Hvað er eðlilegra en sami maðurinn skoði díeselmótor í verksmiðju og í mótorbát eða yfirleitt vélar í verksmiðjum og skipum? Það er enginn óskapa munur á gufukatli í verksmiðju og skipi. Þetta er nú það, sem venjulega þarf bæði að skoða í verksmiðjum og skipum. Ég sé ekki betur en að ná mætti miklu betri árangri, ef þetta hvort tveggja yrði falið sömu mönnunum og þeir geti þá á vissu svæði skoðað bæði skip og verksmiðjur. Ég er viss um, að hæstv. ráðh. hefur ekki sett sig enn nægilega inn í þetta mál, ef hann heldur því enn fram, að þetta séu svo óskyld mál. Þetta sanna bezt dæmin, sem hv. flm. nefndi, t.d. varðandi ryðgaða lásinn, og blokkir, kaðlar og bómur á skipum eru eins og í verksmiðjum. Þetta sannar, að ég hef farið með rétt mál. Þessi mál eru það skyld, að ekki ber að skilja þau í sundur. Annars var dæmið, sem hv. flm. nefndi varðandi kolakranann, þess eðlis, að það stafaði af vanrækslu skoðunarmanns. Og það getur alltaf komið fyrir, hversu mikið fé sem veitt er til þessara hluta. Það var nýbúið að skoða þennan hlut, þegar hann datt niður. Slíkt er ekki löggjafanum að kenna. Síðara dæmið var bein vanræksla á starfinu, þar sem hluturinn hafði ekki verið skoðaður í 10 ár. Ég er sammála því, að málið fari til n., og styð að því, að það fari til hv. allshn. Og ég vil taka það fram, að ég tel rétt, að sú n., sem um málið fjallar, hafi fulla samvinnu við n., sem fjalla um sams konar mál, eins og t.d. skipaeftirlitið.