05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í D-deild Alþingistíðinda. (4757)

171. mál, eftirlit með verksmiðjum og vélum

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Mér hefur verið ljóst, að gildandi l. um eftirlit með vélum og verksmiðjum þurfa endurskoðunar við. Ég get vel fellt mig við þessa breyt., sem fram hefur komið frá n., að orða till. eins og þar segir, og mun ég að sjálfsögðu sjá um, eftir því sem stendur í mínu valdi, að þessi athugun verði gerð svo fljótt sem verða má og árangurinn af þeirri endurskoðun lagður fyrir næsta reglulegt Alþingi, svo framarlega sem það er mögulegt.

En hvað því viðvíkur að leita til ýmissa aðila um upplýsingar og jafnvel þátttöku í þessari endurskoðun, þá skal ég segja, að ég get lýst hiklaust yfir því, að ég mun, eftir því sem í mínu valdi stendur, sjá um, að leitað verði til þeirra aðila og félagasamtaka, sem eiga mest undir því, að þessar reglur og þessi l. séu sem fullkomnust í alla staði, og það kemur þá til álita að fá upplýsingar frá þessum aðilum og þá jafnvel einnig að fá úr þeirra hópi menn, sem starfinu væru vaxnir og vel inni í þessu og gætu á þann hátt látið koma fram gagnlegar upplýsingar í málinu. Ég veit raunar, að það eru mjög margir aðilar, sem þarna eiga hlut að máli og misjafnlega mikið, sumir meira, aðrir minna, en ég mun sem sagt leitast við, að til þeirra verði þá fyrst og fremst leitað, sem mestra hagsmuna eiga þar að gæta.