05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í D-deild Alþingistíðinda. (4759)

171. mál, eftirlit með verksmiðjum og vélum

Skúli Guðmundsson:

Hv. þm. Barð. hefur í tveimur ræðum sínum haldið því fram, að eftirlit með verksmiðjum og vélum væri mjög illa framkvæmt og öðruvísi en vera ætti. Ég skal ekki taka upp neinar deilur um það, ég er ekki svo kunnugur þeim málum. En ég vil benda á, að það er fjarri öllum sanni, sem hann hélt fram í fyrri ræðu sinni, að þessi stofnun væri einkafyrirtæki þess manns, sem veitti henni forstöðu. (GJ: Er það ekki þannig?) Hv. þm. Barð, veit eins vel og ég og hver annar, að í fjárl. er þessi stofnun nefnd og ætluð sérstök fjárveiting til hennar til að borga kostnað við hana, launa eftirlitsmann og annað og síðan komi tekjur á móti. Það er því óviðeigandi að viðhafa slík ummæli, að þessi stofnun sé einkaeign þess manns, sem sér um eftirlitið. Fleira sé ég ekki ástæðu til að segja um það atriði, en ég vil aðeins mótmæla þessum fullyrðingum hv. þm.

Viðvíkjandi þeim till., sem hér liggja fyrir, og þá einkum till. frá hv. þm. Barð. á þskj. 745, þar sem nefndir eru tveir aðilar, Vinnuveitendafélag Íslands og Alþýðusamband Íslands, sem ættu að tilnefna menn í n. til að endurskoða þessa löggjöf, þá vil ég benda á, að það getur vel verið ástæða til þess að gefa fleirum kost á að segja sitt álit og leita eftir till. frá þeim. Mér skildist, að hæstv. samgmrh. vildi gefa sem flestum, sem hlut eiga að máli, kost á að fylgjast með þessu og láta uppi sínar skoðanir um, hvernig þessu skuli fyrir komið. Ég vil t.d. benda á, að það er mjög langt frá því, að allir atvinnurekendur, sem hér eiga hlut að máli, séu í Vinnuveitendafélagi Íslands. Það er mjög langt frá því. Ég held, að samvinnufélögin séu yfirleitt utan þessa félagsskapar, og þau hafa mörg verksmiðjurekstur með höndum. Það getur því vel verið rétt að gefa fleirum en þeim aðilum, sem í till. eru nefndir, kost á að segja sitt orð um þessi mál.