26.03.1947
Efri deild: 100. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í B-deild Alþingistíðinda. (476)

47. mál, sauðfjársjúkdómar

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. Eins og hv. þdm. hafa tekið eftir, hefur verið borið fram í d. og liggur fyrir þessari d. í dag sem 4. mál á dagskrá frv. um innflutning búfjár, sem sent hefur verið Alþingi frá búnaðarþingi, þar sem það var samþ., að ég held, með atkv. allra þeirra manna, sem búnaðarþing sitja, og í því frv. eru þau ákvæði, sem upprunalega voru í þessu frv., hvað snertir innflutning búfjár, og öllu fyllri, en þar var. Afleiðingin af því er sú, og enn fleiri stoðir renna undir það, að það verður að nema burt úr þessu frv. þau ákvæði. sem nú eru eftir í því, sem hér að lúta, en það hefur verið rætt áður í d. svo oft, að ég þarf ekki mörgum orðum um það að fara. Liggja fyrir um þetta nokkrar brtt., og skal ég fara um þær nokkrum orðum.

Fyrst er brtt. við 2. gr. á þskj. 446. Í 2. gr. er talað um, að það eigi að útrýma fjársóttum með kynbótum og tæknifrjóvgun frá erlendum sauðfjárkynjum. Það er engin ástæða til að hafa þetta í þessu frv., ef hitt frv. verður samþ. Það liggur ekkert fyrir um það enn, hvort það verður samþ. eða ekki, en þeir, sem telja, að um þetta þurfi að vera l., geta sætt sig við, að þessi ákvæði verði tekin úr þessu frv., fyrst hitt frv. liggur fyrir. Þess vegna vænti ég, að þessi 1. brtt. verði samþ.

Ég get lýst yfir, að eftir að frv. var hér siðast til umr., hefur landbn. komið saman. og ég held, að ég segi það rétt, það verður þá leiðrétt, ef það er ekki, að hún sé sammála um, að öll þau ákvæði, sem eru í frv. um innflutning búfjár, blöndun á því o.s.frv., falli úr því og verði tekin upp í hitt frv., og mæli þess vegna öll með því, að þessar brtt. verði samþ.

2. brtt. á sama þskj. er um það, að 7. kafli, 42.–43. gr., falli niður og greinatala og kaflaskipting breytist samkvæmt því. Þessi breyt. er beint áframhald af hinni. Þessi kafli fjallar um, hvernig eigi að koma upp sóttvarnarstöð og einangrun á hinu útlenda búfé, sem talað er um í hinu frv. ýtarlega.

Þá er brtt. á þskj. 476 við 45. gr. Hún er um það að veita sauðfjársjúkdóman. heimild til þess með leyfi ráðh. að gera hverja þá ráðstöfun. sem ráðh. álitur nauðsynlega til að hindra útbreiðslu fjársóttanna, reyna að finna læknisráð við þeim og útrýma þeim, einnig að láta útbreiða minna næma fjárstofna, innlenda og erlenda, með sæðingu á þeim svæðum, sem fjárskipti eiga ekki að fara fram á næstu tvö árin. Landbn. stóð saman um að mæla með þessari brtt., og þá falla varatill. allar burt af sjálfu sér, enda koma þær ekki til greina, ef þetta verður samþ.

Nú skal ég geta þess, að það gæti vel verið, að réttara væri að gera enn eina brtt. við 45. gr., bæta aftan við hana heimild til að sæða með sæði úr erlendum hrútum ær á heilbrigðu svæði. þ.e. svæði, þar sem pestir eru engar í fénu. Það voru uppi óskir um það á búnaðarþingi, og sömu óskir hefur orðið vart við í d. hjá fyrrv. hæstv. landbrh., að það yrði með sæðingu sótt bak við varnarlínur á stöðum, sem enn eru heilbrigðir, bæði með erlendum og innlendum stofnum, sem minna eru næmir fyrir veikinni, til þess ef veiki bærist inn á þau svæði, þá væri þar fyrir stofn, sem þyldi betur sóttirnar og yrði því fyrir minna skakkafalli, en annars mundi verða. Ég er ekki viss um, að þörf sé á að bæta þessu þarna við. Eftir frv. um innflutning sauðfjár er ekkert því til fyrirstöðu, að þetta verði gert með erlendu sauðfé, síður en svo, og ekki þessum l. heldur. Hins vegar mundi sauðfjársjúkdóman. tæplega geta tekið upp að sæða fé. t.d. í Austur-Skaftafellssýslu, frá stofni, sem reynzt hefur þolnari gegn fjársóttum, en almennt gerist. Ég held, að hún mundi varla geta tekið það upp eftir þessu frv. Ef maður leggur áherzlu á, að slíkt yrði gert, þá þyrfti helzt að vera einhver stafur um það, og þó skal ég ekki segja um það, því að í gr. er tekið fram, að ráðh. geti gert hvers konar ráðstafanir, sem hann telur þörf á, og það er anzi rúm heimild. Getur verið, að þó mætti skjóta þessu þar inn líka. Ég er hins vegar ekki tilbúinn með brtt. um það. Ég er ekki heldur viss um, að það sé nauðsyn, en ég hreyfði henni, af því að á búnaðarþingi varð vart við, að menn teldu gott. að hægt væri að gera slíkar ráðstafanir, og ég held, að það sé hægt að gera þær, þó að frv. verði samþ. eins og það liggur nú fyrir, og ekki bætt neinu aftan við þessa gr. Annars er hægt með tiltölulega lítilli breyt. að bæta þessu við. Þessu mætti ná með því að segja sem svo: „svo og á svæðum, sem fjárskipti hafa ekki farið fram á“. Ef slík breyt. kæmi. þá næðist það alveg.

Loks er brtt. við 48. gr., sem nemur úr gildi þau tvenn l., sem nú gilda um fjársóttir, l. nr. 75 27. júní 1941 og l. nr. 88 9. júlí 1941 svo og önnur ákvæði, er fara í bága við þessi l. Önnur l., sem nema á úr gildi í 48. gr. frv., snerta ekki það, sem um er að ræða í þessum l., heldur það mál. sem er nr. 4 á dagskrá d. í dag, um innflutning búfjár.

Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta mál. Það liggur svo ljóst fyrir, að ég tel, að ekki þurfi frekar um það að ræða. Brtt. á þskj. 472 er tekin aftur.