21.05.1947
Sameinað þing: 56. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (4781)
236. mál, sala á vélskipi
Frsm. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti. Það er mjög auðvelt fyrir mig að taka tillit til óska forseta um að tefja ekki málið, því að ég get í einu og öllu vísað til nál. fjvn. og tekið fram, að n. hefur orðið sammála um að leggja til, að þáltill. á þskj. 705 verði samþ. með þeirri breyt., sem hér er á þskj. 881. Breyt. er í fyrsta lagi fólgin í því, að í stað orðanna „að fela ríkisstjórninni“ komi: að heimila ríkisstjórninni, — sem þýðir hér um bil það sama, en er nú í betra formi, og að bætt sé við till.: gegn tryggingu, sem ríkisstjórnin metur gilda. — Vil ég svo fyrir hönd n. óska þess, að till. verði samþ. óbreytt.