22.04.1947
Neðri deild: 117. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (480)

47. mál, sauðfjársjúkdómar

Steingrímur Steinþórsson:

Herra forseti. Hv. frsm. landbn. hefur mælt fyrir þeim brtt., sem n. varð sammála um að flytja, og þarf þar engu við að bæta, en út af brtt. frá meiri hl. n. á þskj. 678 langar mig til að segja örfá orð.

Við þm. Skagf. gátum ekki orðið sammála hv. meiri hl. um að taka aftur kaflann um sóttvarnarstöð og einangrun inn í frv., sem hv. Ed. felldi úr því. Afstaða mín til þessa máls byggist mjög á því, sem ég reyndar gat um í vetur við umr. um þetta mál almennt, að ég liti sem sé svo á, að það væri þörf á fullkominni löggjöf um þetta efni, fullkomnari en er í þessum kafla frv., þótt ég til samkomulags væri þá með því að lofa þessum kafla að vera í frv., af því að þá var ekkert frv. komið fram um þessi mál í heild, þ.e. innflutning búfjár. Nú hefur það hins vegar gerzt síðan, að borið hefur verið fram í hv. Ed. frv. til l. um innflutning búfjár, sem búnaðarþing gekk frá í vetur og mælir eindregið með að verði samþ. Ég veit ekki, hvað hv. þm. A-Húnv. hefur fyrir sér í því, að þetta frv. geti ekki náð fram að ganga á þessu þ. Mér virðist hins vegar líkurnar vera allmiklar til þess, einkum af því, að hv. Ed. hefur tekið þessa stefnu í málinu, sem ég geri ráð fyrir, að stafi af því, að hv. Ed. hafi hugsað sér að afgreiða nú á þessu þ. frv. um innflutning búfjár, en í því frv. eru einmitt ákvæðin úr þessum kafla um sóttvarnarstöð og einangrun. Það er af þessum ástæðum, að við þm. Skagf., sem erum báðir ráðnir í því að vinna að framgangi þess frv., sem nú liggur fyrir hv. Ed. um innflutning búfjár, höfum ekki orðið sammála hv. meðnm. okkar um að setja þennan kafla inn í frv. aftur. Hins vegar er mér það ekkert kappsmál, hvernig þetta er nú afgr., því að afnema má þennan kafla úr þessu frv., ef að l. verður, þótt þessi kafli verði aftur settur í frv., ef frv. um innflutning búfjár verður samþ. á þessu þingi.

Ég mun því ekki tefja málið, en vildi aðeins geta um afstöðu mína, og er hún í fullu samræmi við afstöðu mína hér fyrr í vetur, að setja þyrfti heildarlöggjöf í þessu efni, og ég trúi því, að hægt verði að afgreiða þetta frv. þannig, að samkomulag náist, þótt það kynni að verða með nokkrum breytingum.