16.05.1947
Sameinað þing: 53. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í D-deild Alþingistíðinda. (4817)
252. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Flm. (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Þegar verið er að meta það út frá því, hver þau verkefni eru, sem fyrir þjóðinni liggja á hverjum tíma, hver er vilji ríkisstj., þá hefur það sýnt sig, að þau verkefni eru að vaxa, sem þjóðinni ríður mest á. Það er enginn efi á því, að það eru mikil verkefni, sem fyrir þjóðinni liggja nú. Ég ætla að nefna tvö verkefni, sem fyrst og fremst verður að vinna að tafarlaust af fullum krafti. Það fyrsta er að halda áfram nýsköpun atvinnulífsins, sem þegar er hafin, hraðar, einbeittar og á skipulegri hátt en þegar hefur verið gert undanfarin ár, og í sambandi við þá nýsköpun atvinnulífsins sé komið upp fullkomnum áætlunarbúskap, því að með öðru móti en þessu tvennu er ekki hægt að framfylgja nýsköpuninni. Íslendingum ríður sérstaklega á, að þessum verkefnum sé sinnt og sinnt af fullum krafti nú þegar. Jafnvel þegar við lítum á árin eftir síðasta stríð, þegar engar slíkar hugmyndir voru uppi, verður ljóst, að á fyrstu 4–5 árunum eftir síðustu styrjöld voru keyptir til landsins togarar og önnur tæki, sem þjóðin bjó að í tvo áratugi á eftir. Þó ekki sé tekið tillit til annars en reynslunnar frá síðustu styrjöld, þá sýnir það sig, að árin eftir styrjöldina eru afgerandi hvað þetta snertir. Þetta mundi vera það fyrra verkefni, sem yrði tafarlaust að framkvæma, hvaða stjórn sem sæti við völd. Hitt verkefnið er að draga úr þeirri miklu auðsöfnun, sem farið hefur fram hjá einstökum mönnum, og jafna kjörin í þjóðfélaginu, vegna þess að það er hættulegt fyrir okkar þjóð, ef sá mikli auður, sem safnaðist á einstakra manna hendur styrjaldarárin, heldur áfram að vera þar. Þetta gæti komið til með að þýða beina hættu fyrir okkar lýðræði, þegar fram í sækti, því að það hefur sýnt sig með hverri þjóð, að þegar mikil auðsöfnun á sér stað á örfárra manna hendur, þá stofnar það þjóðfélögunum í hættu, því að völd örfárra manna mundu fyrr eða síðar granda lýðræði þjóðarinnar, þannig að fyrir okkur, sem höfum okkar þungu reynslu frá Sturlungaöld um auð og völd örfárra manna, þá er nauðsyn á því að gera þær ráðstafanir, sem mundu skapa meira þjóðfélagslegt jafnrétti og jafna lífskjörin betur en nú á sér stað. Slíkar breyt. á afstöðu þjóðfélagsins viðvíkjandi auðsöfnun örfárra einstaklinga eru ekki aðeins réttlætismál af hálfu vinnandi fjöldans, sem skapar auðinn, heldur er það líka þjóðlegt nauðsynjamál vegna þjóðarinnar sjálfrar og hennar framtíðar. Þetta eru þau tvö verkefni, sem ég fyrst og fremst mundi nefna sem alveg bráðnauðsynleg fyrir þjóðfélagið, þó að fleiri kæmu til greina.
Sósfl. einbeitti sér að því, þegar stjórnarmyndunartilraunir voru gerðar á síðasta hausti, að mynduð yrði stjórn, sem ynni að báðum þessum verkefnum. Sósfl. lagði ríka áherzlu á það og setti fram nákvæma stefnuskrá um það, hvernig stjórna skyldi þessu landi á næstu árum, svo framarlega sem þjóðinni ætti að vegna vel — það ætti að leysa nú þegar þau verkefni, sem mest reið á. Viðvíkjandi þessum tveim verkefnum ber að taka það fram, að stjórnmálalegir möguleikar á því að leysa þessi verkefni eru nokkuð mismunandi, eftir því hvaða flokkar það eru, sem stjórn er mynduð um. Það er engum efa bundið, hvað snertir þá hröðu uppbyggingu atvinnulífsins í landinu, sem hér var hafin. að það var eðlilegt að álykta, að sá hluti Sjálfstfl., sem hafði hagsmuna að gæta af sjávarútvegi, hefði áhuga fyrir því að halda áfram nýsköpuninni. ................................ *) Þvert á móti er auðséð, að stjórnin er svo fjarri því að hafa vilja á að sinna þessum verkefnum, að hún er með þessari atlögu gegn verkalýðssamtökunum að eyðileggja möguleikana á því.
*) Hér í vantar kafla, sem innanþingsskrifari (Már Jóh.) hefur ekki skilað.
Ofan á þetta bætist, að stór verkefni bíða alveg úrlausnar, t.d. það að standa á verði gegn erlendri ásælni hér, eða sjálfstæðismál okkar, og ætla ég ekki að hafa mörg orð um það að þessu sinni. Í öðru lagi vantar að tryggja framtíð Íslands og markaði í þeim löndum Evrópu, sem hafa tekið upp áætlunarbúskap, þar sem hægt væri ef til vill að tryggja markaði til margra ára. Í þriðja lagi er það dýrtíðarmálið og lausn þess, og raunverulega er það eina málið, sem stjórnin hefur lýst yfir jákvæðri afstöðu í. En þar hefur hún þá líka farið þveröfugt að við það, sem hún þóttist ætla að gera. Hún hefur ekkert gert í þessum efnum annað en að auka dýrtíðina og gera erfiðara um vik að ráða við hana eftir á. Og svo leyfir þessi stjórn sér að reyna að ráðast á lífskjör almennings í landinu undir því yfirskini, að verið sé að færa eitthvað til réttrar áttar í dýrtíðarmálunum. Sósfl. hefur alltaf verið reiðubúinn til samstarfs við alla flokka um lausn dýrtíðarmálsins, er það hefði sýnt sig, að óhjákvæmilegt væri að ráðast á þann garð. En sósíalistar hafa aldrei farið dult með það, að þegar út í slíkt væri komið, vildu þeir ráðast á garðinn, þar sem hann væri hæstur, láta þunga dýrtíðarráðstafananna koma á hin breiðu bökin. Og verkalýðssamtökin hafa verið reiðubúin til samstarfs, meira að segja við núverandi stjórn, en það var svo fjarri því, að hún kysi það samstarf, að hún undirbjó árás á lífskjör alþýðu manna án þess svo mikið sem tala við verkalýðssamtökin. Og nú er stjórnin búin að auka dýrtíðina og gera erfiðara fyrir að ráða bót á henni síðar. Verkalýðssamtökin hafa aldrei óskað eftir árás eða baráttu, en þau hafa á hinn bóginn verið og eru neydd til að verjast.
Af öllu þessu sést, að núverandi ríkisstj. er að engu leyti því vaxin að sinna þeim höfuðverkefnum, sem ekki þola neina bið. Og það er svo fjarri því, að stjórnin hafi sýnt vilja til að leysa þessi verkefni, að það er einmitt þveröfugt. Með tali sínu um nýsköpun hefur hún reynt að stöðva hana. Með fyrirheiti sínu um eignakönnun hefur hún aukið á efnahagslegt óréttlæti í þjóðfélaginu, og þannig mætti halda áfram að telja. En að þessu og fleira athuguðu leggjum við, sósíalistar, til, að Alþ. lýsi vantrausti á núverandi ríkisstj. og taki í sínar hendur að reyna að skapa stjórn, sem er vaxin þeim verkefnum, sem bíða úrlausnar, því að ef þessum verkefnum er ekki sinnt nú, þá vofir hætta yfir þjóðinni, þá glötum við tækifæri, sem við fáum ekki aftur árum saman, nú er úrslitastund. Þó að þessi stjórn hafi enn ekki setið lengi, þá hefur hún með allri afstöðu sinni til mála og frumvörpum, sem hún hefur borið fram, sýnt fullkomlega stefnu sína, eða réttara sagt stefnuleysi, og ef hún á að fá að halda þannig áfram, þá gengur það tækifæri úr greipum þjóðarinnar, sem getur gefið henni ómetanlegar fjárfúlgur í aðra hönd, en mikill glundroði skapast í fjármálunum, sem hefur mjög slæmar afleiðingar fyrir okkar þjóðarbúskap. Ég álít því Alþ. ekki seinna vænna að samþykkja vantraust á þessa ríkisstj., svo framarlega að hægt eigi að vera að grípa í taumana í tíma.