22.04.1947
Neðri deild: 117. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (482)
47. mál, sauðfjársjúkdómar
Steingrímur Steinþórsson:
Herra forseti. Það er tilgangslaust, að við játum trú okkar sitt á hvað, hvort frv. í Ed. nái fram að ganga eða ekki. En ekki þarf að óttast ágreining frá okkur í minni hlutanum, því að ég man ekki betur, en að búnaðarþingið afgreiddi þetta samhljóða, enda var það útbúið tryggilega. En ég vildi mótmæla því hjá hv. þm. A-Húnv., að ég hafi verið meðmæltur víðtækum heimildum um innflutning. Það hef ég ekki verið, heldur taldi ég, og reynslan hefur sýnt það, að alltaf yrði eitthvað af skepnum flutt inn í landið, og þess vegna þarf að hafa heilsteypta löggjöf um það. Að öðru leyti er svo ekki ástæða til að fjölyrða um málið.