16.05.1947
Sameinað þing: 53. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í D-deild Alþingistíðinda. (4823)
252. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Gylfi Þ. Gíslason:
Ég var andvígur því, að Alþfl. gengi til stjórnarsamstarfs við Sjálfstfl. og Framsfl. á grundvelli þess málefnasamnings, sem gerður var við myndun núverandi ríkisstjórnar, þar eð ég taldi samstarfsflokkana — og þá sérstaklega Sjálfstfl. — ekki hafa viljað ganga nægilega langt til móts við sjónarmið og stefnu Alþfl., enda hef ég yfirleitt enga trú á, að hægt sé að stjórna landinu með hagsmuni hinna vinnandi stétta fyrir augum í samvinnu við Sjálfstfl., þótt ég beri fullt traust til þess, að ráðherrar Alþfl. í þessari ríkisstj. gæti þar hagsmuna hinna vinnandi svo sem frekast er unnt. En þar eð miðstjórn og þingflokkur Alþfl. samþykktu hins vegar að ganga til þessa stjórnarsamstarfs og samstarfsflokkarnir hafa ekki rofið þann samning, sem gerður var, segi ég nei við þessari vantrauststillögu.