11.11.1946
Sameinað þing: 9. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í D-deild Alþingistíðinda. (4831)

46. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Herra forseti. Ég hygg, að þau stóryrði, sem féllu hjá hv. þm. Barð. í sambandi við viðskiptaráð, séu ekki mikið á rökum reist. Það er að vísu rétt, að það hefur stundum verið nokkur tregða á að fá gjaldeyrisleyfi fyrir námsmenn, er nám stunda erlendis, en sú tregða stafar af því, að viðskiptaráð hefur talið sig knúsið til þess að heimta frekari upplýsingar um námsmenn en legið hafa fyrir, þegar beðið hefur verið um gjaldeyrisleyfi fyrir þá, og það hefur beinlínis komið í ljós, að gerðar hafa verið tilraunir til að misnota þetta. Það hefur stundum verið beðið um yfirfærslu gjaldeyris til námsmanna, en síðan hefur komið í ljós, að þeir hafa ekki stundað það nám, sem gefið var upp. Það er því varla hægt að ámæla viðskiptaráði fyrir það, þótt það leitist við að ganga úr skugga um, hvort raunverulega sé þörf á þeim yfirfærslum, sem sótt er um leyfi fyrir. Viðskiptaráði er oft legið á hálsi fyrir gjaldeyriseyðslu, og eftir að því var kunnugt um misnotkun slíks gjaldeyris, þá er eðlilegt, að það setji reglur um þetta. Ég mun ekki setja mig á móti því, að þessi till. verði samþ., því að þetta skiptir mig ekki miklu máli, en þótt hún verði samþ., þá verður lítil breyt. á afgreiðslu þessa máls hjá viðskiptaráði, því að það mundi eftir sem áður leitast við að ganga úr skugga um, hvort það fé, sem óskað er yfirfærslu á, eigi að ganga til að kosta dvöl manna erlendis. Hv. þm. talaði um, að ástæða væri til að setja um þetta reglugerð, en ég held, að erfitt væri að setja um þetta reglur, sem hægt væri að fara eftir út í yztu æsar, af þeirri ástæðu, að námskostnaður erlendis er mjög mismunandi eftir því, í hvaða landi námið er stundað og við hvaða skóla. Það verður því í hverju einstöku tilfelli að ganga úr skugga um, hver gjaldeyrisþörfin er, og ég get fullyrt, að viðskiptaráð hefur jafnan veitt þau gjaldeyrisleyfi til námsmanna, sem það hefur talið nauðsynleg fyrir þá, þegar það hefur fengið þær upplýsingar, sem óskað hefur verið eftir. Hv. þm. Barð. talaði um, að honum þætti ekki ástæða til að vísa málinu til n. Er ég þar á annarri skoðun, því að ég held, að það sé einmitt ástæða til að vísa því til n. og það athugað þar gaumgæfilega, eftir hvaða reglum eigi að fara, því að þarna verður annað að ráða en handahófsafgreiðsla. Vil ég leyfa mér að mælast til þess, að málinu verði vísað til hv. allshn.