25.10.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í D-deild Alþingistíðinda. (4858)
22. mál, ullarkaup ríkissjóðs
Flm. (Steingrímur Steinþórsson):
Ég get að miklu leyti vísað til þeirrar grg., sem fylgir þessari þáltill. á þskj. 30, er ég flyt hér ásamt fjórum öðrum hv. þm., eins og sést á þskj., en ég vil bæta örfáum orðum við það, sem í grg. stendur. Þegar lögfest var samkomulag sexmannanefndarinnar 1943, þá var gengið út frá ákveðnu verði á ull, eins og öðrum afurðum landbúnaðarins. Framleiðendum voru ætlaðar kr. 8.50 fyrir hvert kg. af ull án tillits til, hvaða flokk væri um að ræða. Þau þrjú ár, sem sexmannanefndarsamningurinn var í gildi, var sama verð ákveðið öll árin, þ.e.kr. 8.50 hvert kg., og vitanlega ber ríkissjóður ábyrgð á því, að framleiðendur fái þetta verð að lokum fyrir ullina. Nú var sáralítil ull seld á styrjaldarárunum, svo að ullarframleiðslan frá árunum 1943, 1944 og 1945 hefur safnazt saman, og mun hér vera að ræða um 1200–1300 tonn. Nú mun þó vera búið að selja 730 tonn, og ég hygg, að sú sala hafi orðið þannig, að ríkissjóður hafi ekki borið neinn verulegan halla af þeirri sölu eða kannske engan. En enn þá liggja 500 tonn óseld frá þessum 3 árum. Hér sleppi ég alveg ullarframleiðslu þessa árs, en hún er enn óseld, en það snertir ekki þetta mál, þar sem ríkissjóður stendur ekki í ábyrgð fyrir þeirri framleiðslu. Er því ekki þörf á að rugla því saman. Afleiðing þessa hefur orðið sú, að bændur hafa ekki fengið nema nokkurn hluta þessa ullarverðs, sem þeir eiga kröfu til. Ég veit, að víða hefur verið fært í reikninga þeirra kr. 3.50 fyrir kg. eða 4 og eitthvað á 5. kr., þar sem hæst hefur verið áætlað. Þetta er mjög glöggt og gott dæmi fyrir hv. þm. að athuga, þegar verið er að tala um hið háa verð, sem bændur fái fyrir afurðir sínar. Þótt verðið sé ákveðið kr. 8.50 fyrir hvert kg. af ull þessi 3 ár, þá hafa flestir bændur ekki fengið nema 3–4 kr. fyrir kg. Og svona hefur það verið með marga hluti fleiri, hvað þeirra afurðir snertir. Ég hugsa, að verkamönnum þætti það ekki í lagi að þurfa að bíða í 2, 3 og 4 ár eftir hluta af launum sínum, en þetta hafa bændur orðið að gera. Nú er ég ekki að ásaka neinn í þessu efni, því að ríkissjóði ber ekki skylda til samkv. l. að ábyrgjast verðið, fyrr en sala ullarinnar fer fram. Ég veit þetta, en þetta getur ekki gengið svona til lengur, og við flm. þessarar till. teljum, að þetta verði að gerast upp fyrir næstu áramót, svo að hægt sé að ganga frá ullarverðinu fyrir þessi ár. Ef ekki verður unnt að selja ullina fyrir áramót, þá leggjum við til, að ríkissjóður kaupi hana og greiði fyrir hana lögákveðið verð. Síðan getur hann svo geymt hana, þangað til sala getur farið fram. En mér er sagt, að nú sé verið að leita eftir sölu á ullinni í Póllandi og víðar, og hef ég heyrt, að líkur séu til, að samningar muni takast um sölu bráðlega. Þetta væri gleðilegt, og þá gætum við hugsað okkur, að þessi þál. væri óþörf, svo framarlega sem salan fer fram nú og hægt verður að koma þessu í kring fyrir áramót. En þar sem allt er enn í óvissu um þetta, þá tel ég, og væntanlega við flm. allir, að rétt sé að bera fram þessa þál. nú til þess fyrst og fremst að minna á þetta og í öðru lagi sem kröfu af hálfu ullarframleiðenda um það, að þetta mál verði ekki látið bíða lengur en til næstu áramóta, svo að þá sé hægt að ganga frá því verði, sem þeim ber fyrir þessi ár. Ég hygg það sé ekki ástæða til að taka fleira fram varðandi þetta að þessu sinni. Ég tel ekki óeðlilegt og geri það að till. minni, áð þessi till. fari til hv. fjvn., eins og sú till., sem var hér á undan til umr. (Till. til þál. um greiðslu úr ríkissjóði til verðjöfnunarsjóðs.), enda eru þessi mál mjög skyld hvort öðru, þótt misjafnt sé, hvað liggur til grundvallar fyrri till. og þessari.