22.04.1947
Neðri deild: 117. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (486)

47. mál, sauðfjársjúkdómar

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Það er hæpin atkvgr., ef við endurskoðun má breyta efni í þessari till. Hér er í annarri brtt. vitnað í efni 42. gr., sem er þegar felld. En umskapa þarf 43. gr., ef það á að geta komizt að, því að tilvitnunin er um allt annað efni. Eða er það 2. liður, um hvað niður skuli fellt? (Forseti: Svo mun vera.) Úr því svo er, þá bið ég afsökunar.