25.10.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í D-deild Alþingistíðinda. (4860)
22. mál, ullarkaup ríkissjóðs
Flm. (Steingrímur Steinþórsson):
Ég ætla ekki að lengja umr. um þetta, og ég get að nokkru leyti þakkað hæstv. ráðh. fyrir undirtektir hans, þar sem hann óskar eftir, að hv. fjvn. taki málið til athugunar. Mér virðist að vísu hæstv. ráðh. muni vera því fremur mótfallinn, að ríkissjóður kaupi þessar ullarbirgðir, ef ekki tekst sala á þeim á næstu mánuðum. Það hugsa ég, að sé skoðanamunur milli okkar og ráðh. Ég tel, að með þeirri ábyrgð, sem ríkið tók á þessari vöru um þetta árabil, þá hljóti að fylgja það, að þetta verði einhvern tíma gert upp, og ég tel, að þessi dráttur megi ekki verða lengri en hann er þegar orðinn. Við verðum að ganga út frá því, að úr því ríkissjóður tók ábyrgð á þessari vöru, þá geti það ekki gengið svo til ár eftir ár, að uppgjör fari ekki fram. Og það gleður mig, að hæstv. ráðh. skuli segja, að hann muni beita sér fyrir því, að ullin verði seld og það sem allra fyrst. Ég vil leggja áherzlu á það, að bezt muni vera, að þetta sé gert sem fyrst upp, og það mun líka vera heppilegast vegna þess, sem ríkissjóður verður að greiða í sambandi við það.