10.01.1947
Sameinað þing: 22. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í D-deild Alþingistíðinda. (4869)

22. mál, ullarkaup ríkissjóðs

Frsm. meiri hl. (Pétur Ottesen):

Ég bið velvirðingar á þeim mistökum, sem átt hafa sér stað varðandi undirskrift hv. síðasta ræðumanns undir nál. meiri hl. fjvn. En þessar upplýsingar hans skera úr um afstöðu hans, svo að það er þá ekki nema hv. 1. landsk. einn, sem er í minni hl. Ef til vill eru þessi mistök mér að kenna, og bið ég þá velvirðingar á því.

Hæstv. fjmrh. lét orð falla á þá leið í ræðu sinni, að mál þetta væri nú nokkuð fast sótt af bændum, endanlegt uppgjör ullarinnar. Miðað við langlundargeð þeirra, er þeir hafa beðið miklu lengur eftir ullarverðinu en öðru afurðaverði á undanförnum árum, má segja, að málið sé nú fast sótt. En þegar litið er á það, að allar aðrar stéttir í þjóðfélaginu gera kröfur til að fá vinnu sína greidda strax og enginn sýnir biðlund, er þetta mál sízt fast sótt í samanburði við það, þótt þess sé óskað 1947, að þessi viðskipti bænda séu gerð upp. Það er síður en svo ósanngjarnt, að bændur bera fram þessa ósk. Mér fyrir mitt leyti er þeim mun ljúfara að taka undir hana nú, sem ég átti þátt í því í fjvn. áður að vísa óskum bænda á bug með því að láta málið kyrrt liggja, þótt það væri þannig lagt fyrir fjvn., að ástæða hefði verið til að láta það koma fram í ályktunarformi.

Hæstv. fjmrh. taldi, að svo mikil ull hefði þegar selzt, að andvirði hennar mundi hrökkva til að gera upp árin 1943 og 1944. Engu að síður virðist mér nú full ástæða til að gera endanlega upp þessi viðskipti, og kemur sá vilji fram hjá flm. þessarar till. og öllum nm. í fjvn., að einum undanskildum. Það kæmi náttúrlega til greina fyrir ríkið að athuga, hvort hærra verð mundi fást fyrir hina óseldu ull en núgildandi markaðsverð. En það eru litlar horfur á hærra verði. Í bréfi frá Garðari Gíslasyni um þetta efni, sem sent var n., er það tekið fram, að litlar líkur séu fyrir því, að það, sem eftir er af ullinni, seljist yfir markaðsverði, og stöðugt minnkandi möguleikar fyrir sölu. Þess vegna virðist mjög eðlilegt, að nú sé selt það, sem eftir er af ullinni, og bændum greitt það, sem þeim ber. Í sama strenginn tekur S.Í.S. í bréfi til n.

Um hitt atriðið, hvort ríkissjóður sé fær um þær skuldbindingar, sem þetta hefur í för með sér, stendur fjmrh. næst að dæma um. Ég mun ekki véfengja það, að stofna yrði til lántöku, en með skírskotun til umsagnar þeirra aðila, sem ullarsöluna hafa með höndum, þá finnst mér vera til athugunar, hvort rétt sé að bíða með söluna og hvort slík bið yrði ekki einungis til þess, að ríkissjóður yrði að færa stærri fórnir en ella. Ég get ekki gengizt inn á það, að það sé á nokkurn hátt óeðlilega fast sótt af hálfu bænda, þó að þeir óski að fá gert upp nú, þvert á móti tel ég það mjög réttmæta kröfu.