06.02.1947
Sameinað þing: 26. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (4876)
22. mál, ullarkaup ríkissjóðs
Frsm. meiri hl. (Pétur Ottesen):
Það er nú orðið svo langt um liðið, síðan þessi till. var tekin af dagskrá hér á þingi, að það ákvæði till., að hægt verði að gera upp við bændur um ullarverð fyrir 31. jan. 1947, stenzt ekki lengur. Fjvn. hefur því borið hér fram skrifl. brtt., að í staðinn fyrir orðin „31. jan.“ komi: 28. febr. — Um leið og ég legg fram þessa skrifl. till. fyrir hönd n., vil ég taka fram, að það var búið að ræða þessa till. svo ýtarlega síðast, að mér þykir ekki ástæða til, nema sérstakt tilefni gefist, að taka upp umr. um hana á ný. Ég vil svo afhenda hæstv. forseta þessa skrifl. brtt.