06.02.1947
Sameinað þing: 26. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (4881)

22. mál, ullarkaup ríkissjóðs

Frsm. meiri hl. (Pétur Ottesen):

Mér finnast þessi tilmæli, sem hæstv. fjmrh. hefur borið fram, eðlileg, miðað við þá breyt., sem orðin er á ríkisstj., en ég vil mega vænta þess, að ekki yrði farið svo að sem í fyrta skiptið, er málið var tekið af dagskrá, að fresturinn yrði til þess, að enn þá þyrfti að bera fram brtt. af þeim sökum, og vil ég þess vegna bera fram þá ósk, að reynt yrði að hraða þessari till., þannig að sú brtt., sem nú er borin fram af fjvn. eða meiri hl. hennar, gæti staðizt eða það tímatakmark, sem þar er. Ég býst við, að það sé fyrir hendi svo góður vilji til að leysa þetta mál á sanngjarnan hátt, að það mætti takast.