05.11.1946
Sameinað þing: 7. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í D-deild Alþingistíðinda. (4897)

328. mál, húsnæði handa rektor menntaskólans í Reykjavík

Eiríkur Einarsson:

Herra forseti. — Þótt ég líti svo á, að þetta húsnæðismál, sem hér um ræðir, þurfi að athugast í sambandi við aðra opinbera húsagerð, sem svo margþætt er nú á tímum, þá tel ég ekkert því til fyrirstöðu, að athuguð verði nánar sú nauðsyn, sem fyrir dyrum er á, að rektor Menntaskólans í Reykjavík fái þak yfir höfuðið, og álít ég því réttlátt, að umr. verði haldið áfram til síðari umr., og með tilliti til þess segi ég já.