29.04.1947
Efri deild: 123. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (490)
47. mál, sauðfjársjúkdómar
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. Þetta mál er aftur komið hingað í d., eftir að hv. Nd. hafði haft það til einnar umr. og gert á því tvær breyt. Hin fyrri er við 28. gr., og er hún á þá leið, að við næstsíðustu málsgr. gr. bætist: „skal um fyrirkomulag atkvæðagreiðslunnar hlíta ákvæðum 26. gr. laga um sveitarstjórnarkosningar frá 23. júní 1936, eftir því sem við á.“ Er hér um mjög lítilfjörlega breytingu að ræða eða nánar sagt enga. Ég benti á, að þessar kosningar mundu aldrei fara fram eins og sveitarstjórnarkosningar og væri því ekki hægt að fara eftir þessu ákvæði, eins og það var orðað. Var þá bætt aftan við gr.: „eftir því sem við á“, og hefur þessi breyt. því engin áhrif á framkvæmd málsins. Það hefur áður verið tekið fram, að þessar kosningar eiga að vera leynilegar, og kemur það ekki að sök, þótt þetta ákvæði standi í frv. Er því óþarfi að senda það á ný til hv. Nd. út af þessu atriði.
Síðari breyt. er við 37. gr. Er hér um að ræða mjög umdeilt atriði, og er ég satt að segja mjög undrandi yfir því, hvernig hv. Nd. hefur gengið frá því. Þessi breyt. fjallar um það, við hvaða fjártölu skuli miða bætur, þegar skorið er niður. Það hafa verið uppi um þetta hér á hv. Alþ. ýmsar till.. og um skeið var komið inn í frv. í hv. Nd. að miða við 4 ár aftur í tímann. Þær breyt., sem gerðar voru á frv. í þessari hv. d. í þessum efnum, voru gerðar í samráði við sauðfjársjúkdóman., sem mest afskipti hefur haft af þessum málum og mest hefur vit á því, hvernig hagkvæmast er að koma þessum málum fyrir. Óskaði hún eftir, að miðað væri við næstsíðustu áramót, áður en skipti færu fram, sem sé ef fjárskipti færu fram á sumrinu 1947. væri miðað við fjártöluna, sem fram kæmi við skattaframtal 1. jan. 1946. Það er náttúrlega ástæða til að ætla, að yfirleitt hafi fjártalan hjá þeim mönnum, sem fé hefur verið skorið niður hjá, verið því hærri sem lengra er farið aftur í tímann, og þar af leiðandi þeim mun hærri bætur, sem ríkissjóður þarf að greiða, og þeim mun hagkvæmara fyrir þessa menn að fara sem lengst aftur í tímann. Hins vegar er á það að líta, að ýmsir menn hætta búskap, einn kaupir, annar selur o.s.frv., og nýir menn taka við bústofninum, en því fleiri ár sem líða, þeim mun erfiðara er að elta uppi þessa menn, sem hafa skipt um búnaðarhætti, og ákveða bæturnar fyrir hvern einstakan í þessum efnum. Það er einmitt þetta, sem hefur verið hið erfiða viðfangsefni sauðfjársjúkdóman., og þess vegna hefur hún óskað eftir því, að sem skemmstur tími væri frá þeim tíma, er miða ætti við, og til fjárskiptanna. Nú hefur hv. Nd. fært sig aftur upp á skaftið og fellt till. okkar, þar sem við vildum miða við næstsíðustu áramót á undan. Mér er hins vegar ekki alveg ljóst, hvernig hún hugsar sér þetta í framkvæmdinni. Þessi nýja gr., sem hv. Nd. hefur nú samþ., hljóðar þannig. með leyfi hæstv. forseta: „Framlag ríkisins vegna fjárskipta á árunum 1947 og 1948 miðast við fjártölu eigenda samkvæmt skattaframtali á árinu 1946. Á árinu 1949 miðast við skattaframtal 1947 og svo áfram þannig, að fjárskiptaframlag miðast við skattaframtal tveim árum áður.“ Í gr. stendur sem sé, „að fjárskiptaframlag miðast við skattaframtal tveim árum áður“, en þegar fé verður skorið niður í haust á árinu 1947, hvaða skattaframtal er tveim árum áður? Er það skattaframtal, sem gert er á árinu 1946? Mér er þetta ekki alveg ljóst, en ég geri ráð fyrir, þó að óljóst sé í frv., að í framsöguræðu um málið í Nd. liggi fyrir, hvaða skilning þeir leggja í þetta. og sá skilningur verður vafalaust látinn gilda. Ég er undrandi yfir því, að annað skuli vera látið gilda fyrir niðurskurð á árinu 1947, en öll önnur ár. því að í frv. stendur, að uppbætur vegna niðurskurðar á árunum 1947 og 1948 eigi að miðast við framtal 1946. Þetta er því ranglæti gagnvart þeim, sem skera niður 1947. Mér er sagt. að orsök þess, að brtt. voru bornar fram í Nd., séu, að í tveimur sveitum, annarri í Skagafirði, en hinni í Húnavatnssýslu, sé rætt um niðurskurð 1948 og sé því lagt til að miða þar við framtal 1946. Þó að ég og landbn., a.m.k. þeir þrír nm., sem ræddu um þetta í morgun, teljum þetta ekki eins réttlátt og Ed. gekk frá því, þá teljum við það ekki svo mikilvægt, að við viljum senda málið í Sþ. Því leggjum við ekki fram neinar brtt. og leggjum til, að frv. verði samþ. eins og það nú kemur frá Nd. þó að við teljum það hafa þar breytzt mjög til hins verra.