10.12.1946
Sameinað þing: 16. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í D-deild Alþingistíðinda. (4923)
269. mál, héraðabönn
Forseti (JPálm):
Mér þykir ástæða til að mótmæla því, að þm. hafi haldið hér ræðu undir áhrifum áfengis. A.m.k. , hefur það ekki verið svo á því tímabili, sem ég hef setið hér í forsetastóli, að nokkur maður hafi verið hér undir áhrifum áfengis. Ég hef ekki verið á hverjum fundi í Nd, en ég held, að þetta hafi ekki átt sér stað þar. Ég veit ekki um þetta í hv. Ed., en þætti æskilegt, að forseti þeirrar d. vildi segja til um, hvort þetta hefur átt sér stað þar.