10.12.1946
Sameinað þing: 16. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í D-deild Alþingistíðinda. (4927)
269. mál, héraðabönn
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Þessi till., sem hér liggur fyrir, er um það, að skora á ríkisstj. að láta koma til framkvæmda l. um héraðabönn. Ég vil benda þm. á það, að hvort sem þeir álíta, að þessi l. eigi að koma til framkvæmda eða ekki, þá er það beinlínis skerðing á sjálfsforræði manna að leyfa þeim ekki að koma til framkvæmda. Ef meiri hl. manna á Ísafirði óskar eftir slíku banni hjá sér, þá er það ekki okkar að hindra þá í því að koma því á. Hitt er svo annað mál, hvort ekki er hægt að koma þangað víni og selja í leynisölu, en þar sem menn trúa á þetta og vilja reyna það, þar á að leyfa það.
Mér finnst það vera viðbjóður að heyra tvo forseta flytja hér rangt mál. Það er að vísu rétt, að forseti Ed. hefur ekki heyrt menn halda ræðu fulla, en hann hefur horft á mann svo fullan, að það hefur þurft að greiða atkv. fyrir hann, og forseti Nd. hefur horft á mann svo fullan, þó að ekki væri það á þessu þingi, að hann sofnaði í sæti sínu og hrökk svo upp með umli miklu, svo að menn hölluðu sér fram af pöllunum til þess að sjá, hvaðan þessi hávaði kæmi. Svo segjast þessir menn aldrei hafa séð mann undir áhrifum víns í þingsölunum. Ég verð að segja, að mig undrar þetta stórlega, að forsetar segi svo stórlega ósatt.