21.05.1947
Sameinað þing: 56. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í D-deild Alþingistíðinda. (4937)

269. mál, héraðabönn

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Þriðja málið á dagskránni í dag er till. til þál. um héraðabönn. Ég hef fengið upplýsingar um það hjá skrifstofu þingsins, að málið hefur sætt þeirri meðferð, að því er útbýtt 22. nóv. í haust. Það fer til n. 5. des. Það velktist í n, út þann mánuð, janúarmánuð, febrúarmánuð og fram í miðjan marz. Það kemur 14. marz úr n. Þá líður hálfur mánuður, þar til 28. marz, að það kemur á dagskrá, og þá er það tekið af dagskrá. Kemur á dagskrá 8. maí og er tekið af dagskrá. Kemur á dagskrá nú 21. maí, og verður samkvæmt því, sem hæstv. forseti hefur tjáð mér, tekið af dagskrá. Enginn flm. hefur nokkru sinni óskað þess, að málið væri tekið af dagskrá. Nú mun það hins vegar hafa verið þannig afgr. í n., að samkomulag var um, að þessi till. um bindindismál næði fram að ganga og málið yrði afgr. á þessu þingi. Ég veit ekki, hver hefur óskað eftir því, að málið sé tekið af dagskrá, en hæstv. forseti hefur tekið það fram, að þess hafi verið óskað.

Ég læt í ljós undrun mína yfir þessum drætti, sem er brot á gerðu samkomulagi, og ég vil fara fram á það við hæstv. forseta, að hann sjái sér fært að taka þetta mál á dagskrá, næst þegar fundur verður í Sþ., og verði það þá afgr.