10.12.1946
Sameinað þing: 16. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í D-deild Alþingistíðinda. (4964)

272. mál, kirkjumálalöggjöf

Flm. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. — þessi þáltill., sem hér liggur fyrir, skýrir sig sjálf og þarf ekki að túlka hana mikið. Það er kunnugt, að á flestum sviðum íslenzkrar löggjafar eru enn þá gildandi mjög gömul lagaákvæði og úrelt og margt stangast á í íslenzkri löggjöf, svo að þeir munu vera fáir í landinu, sem vita það í raun og veru, hvað rétt l. eru á ýmsum sviðum. Hvergi kveður þó eins rammt að þessu eins og í kirkjulegri löggjöf. Þar er fleira af úreltum lagaákvæðum en á nokkru öðru sviði löggjafarinnar. Í grg. með þessari þáltill., sem fer fram á endurskoðun allra kirkjulegra lagaákvæða og ætlast til þess, að saminn verði samfelldur lagabálkur, þar sem hverjum málefnaflokki kirkjulöggjafarinnar eru gerð skil í sérstökum kafla, er á það bent, að í gildi séu l. frá 1275 eða 670 ára gömul. Þá eru og mýmörg lagaákvæði í gildi frá 17. öld, svo sem kirkjuordinantia Kristjáns IV., konungsbréf um aldur presta, alþingissamþykkt um prestsmötu, konungsbréf um legorð presta, dönsku lög Kristjáns V.

Þetta eru allt lagaákvæði frá 17. öld, 200 ára eða eldri. Frá 18. öld eru mýmörg lagaákvæði og mörg þeirra, eins og hin fyrri, mjög úrelt. Mætti þar benda á l. um húsvitjanir.

Það vita allir, að húsvitjanir presta eru nokkurn veginn lagðar niður, en samkv. þeim l., er prestum gert að skyldu að húsvitja a.m.k. tvisvar á ári hvert heimili í sókn sinni.

Þá er þrenns konar lagasetning um confirmation, fermingu. Öll þau lagaákvæði eru löngu úrelt. Nú fer ferming unglinga fram venjulega úr 1., 2, eða 3. bekk unglingaskóla eða gagnfræðaskóla, en kristindómsfræðslunni lýkur í barnaskólum samkv. nýju skólalöggjöfinni, þegar börnin eru 12 ára gömul. Þau má þó ekki ferma, fyrr en þau eru 14–15 ára gömul. Þó má veita undanþágu, þannig að þau séu fermd 131/2 árs. Það væri eðlilegt, að fermingin færi fram undir eins að lokinni barnafræðslunni, og er engin ástæða til að draga það 1–3 ár.

Lagaákvæðin um sjúkravitjanir presta eru úrelt, og þannig mætti lengi telja. Auk þess rekast ákvæðin á og stangast hvert gegn öðru.

Það er til þess ætlazt, að þeir menn, sem bezt þekkja til þarfa kirkjunnar og að kirkjulegum málefnum standa, verði tilnefndir af ríkisstj. til þess að endurskoða öll þessi lagaákvæði.

Ég hygg, að um það verði ekki deilt, að það yrði til bóta, ef samfelldur lagabálkur yrði saminn varðandi þessi málefni, á líkan hátt og skólamálalöggjöfin hefur verið endurskoðuð undanfarin ár. Ég get ekki ímyndað mér, að nokkur ágreiningur verði um það, að ríkisstj. verði falið að framkvæma slíka endurskoðun, og hef því ekki fleiri orð um þetta að segja.