16.01.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í D-deild Alþingistíðinda. (4970)

332. mál, lögræði

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson):

Ég vil, um leið og ákveðið verður, hvert vísa skuli þessari till., gefa þær upplýsingar fyrir þá n., sem fær málið til athugunar, að ég hafði með bréfi 4. okt. s.l. falið Þórði Eyjólfssyni hæstaréttardómara að endurskoða þessa löggjöf, nokkuð með tilliti til þess, sem segir í till.

Nú er það svo með frelsi manna, að flestir munu telja, að það sé það dýrmætasta, sem þeir eigi, og er þess vegna mjög nauðsynlegt, að í l. séu allströng fyrirmæli til þess að koma í veg fyrir, að frelsissvipting verði misnotuð af óhlutvöndum mönnum: Af þessum ástæðum eru ákaflega ströng fyrirmæli um þetta í íslenzkri löggjöf. En að sérstaklega gefnu tilefni frá tveimur embættismönnum landsins; landlækni og geðveikralækni, fól ég Þórði Eyjólfssyni að framkvæma þessa endurskoðun. Þórður er langt kominn með að endurskoða þessa löggjöf, og geri ég ráð fyrir, að hann muni innan hálfs mánaðar geta sent niðurstöður af endurskoðun sinni til dómsmrn., sem að sjálfsögðu tekur þetta mál til athugunar, á hvern hátt það skuli lagt fyrir Alþ. Þar sem Þórður Eyjólfsson mun vera lærðasti lögfræðingur, sem við eigum í þessari grein hér á landi, að öllum öðrum ólöstuðum — hann kenndi m.a. þennan þátt lögfræðinnar, meðan hann starfaði við háskólann —, þá tel ég í rauninni, að nefndarskipun til að athuga þessi mál sé óþörf og ætti að nægja sú endurskoðun, sem Þórður Eyjólfsson er að ljúka við í þessu efni.