16.01.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í D-deild Alþingistíðinda. (4982)

274. mál, millilandasiglingar strandferðaskipa

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég var nýlega að lesa í bókinni „Komandi ár“, og var þar m.a. rætt um póstferðir og samgöngur um landið. Póstferðir þyrftu að vera vikulega og standa í sambandi við reglulegar strandferðir. Það starfaði póstmálan. fyrir nokkrum árum, og till. hennar voru þær, að reynt yrði að koma á póstsiglingum, og byggðust þær á því, að til væru tvö skip eins og Esja, sem færu hvort á móti öðru og kæmu með hér um bil 6 daga millibili á hverja höfn og gætu þannig dreift póstinum. N. þessi ætlaðist til, að tveir smábátar, og helzt þrír, færu svo á eftir þessum stærri skipum og dreifðu póstinum á smærri hafnarstaði. Þessi till., sem reynt hefur verið að framkvæma, er langt frá því að vera framkvæmd enn, og stafar það af því, að skipasamgöngurnar hefur ekki verið hægt að framkvæma, eins og ætlast hefur verið til.

Hv. þm. Barð. talaði um áætlun frá n., sem sat í strandferðamálum, og er hún nokkuð samhljóða áliti þeirrar n., sem ég nefndi. Báðar þessar n. sjá nauðsyn þess að auka strandferðirnar frá því, sem nú er, og sjá ekki aðra leið til þess en að hafa tvö fullkomin skip eins og Esju og svo minni flóabáta til þess að nota innan fjarða, eftir því sem þeir koma. Nú þegar þetta er að verða að veruleika og von er á skipunum, svo að þetta gæti komið fram árið 1948 — fyrr gæti það aldrei orðið, að póstsamgöngur úti um land gætu komizt í það horf, sem hugsjónamenn hafa þráð í mörg ár og almenningur tekið upp og séð, að bæri að framkvæma og viljað fá framkvæmt, og tvær n. orðið sammála um —, þá kemur allt í einu fram á Alþ. till. um að ónýta þetta, sem nú er að hilla undir, með því að ákveða að taka þessi skip úr þessum ferðum, sem þjóðin hefur þráð að fá í mörg ár, og smella þeim til útlanda með ferðamenn, sem langar til að slá sér svolítið út. Það breytast tímarnir á Íslandi. Menn horfðu áður fyrr vonaraugum á strandsiglingarnar sem hjálparhellu fyrir fólkið í dreifbýlinu og póstferðir í fámenninu, en nú á að hugsa um þéttbýlisfólkið með því að sjá því fyrir fari til útlanda til þess að skemmta því.

Ég hefði viljað óska þess, að þegar allshn. fær þessa till. til meðferðar, biði hún með það að ákveða að kippa burt þeim vonum, sem bundnar eru við það, að bæði strandferðir og póstferðir kringum land komist í gott horf, þar til hún sæi, hverjar yrðu afleiðingar þessarar stefnu, sem hér kemur fram.

Nú er það svo, að alltaf berast af og til kvartanir utan af landi, hvað snertir samgöngurnar. Það mundi sízt verða til þess að draga úr þeim að kippa burtu um lengri tíma einu aðalstrandferðaskipinu, eins og hér er gert ráð fyrir. Ég vara bæði Alþ. og allshn. alvarlega við að fara út á þessa braut. Við höfum dæmin fyrir okkur frá fyrra sumri, þegar Esja var send til Danmerkur og var í langan tíma í þeirri ferð. Við vitum, hve mikil óþægindi hlutust af því fyrir strandferðirnar, og því hygg ég, að mönnum ætti að hafa lærzt að gera ekki slíkt aftur, meðan við höfum ekki fleiri strandferðaskip en útlit er fyrir, að við höfum í nánustu framtíð.