16.01.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í D-deild Alþingistíðinda. (4983)
274. mál, millilandasiglingar strandferðaskipa
Flm. (Jónas Jónsson):
Herra forseti. Ég vildi segja hér nokkur orð út af ræðu hv. þm. Barð. Hann minntist á utanferð Esju í sumar og lét ráða í það, að allt það fólk, sem með henni sigldi, hafi farið til þess að skemmta sér. Þetta er alger misskilningur hjá hv. þm., því að þetta var alls ekki tilfellið, en eðlilega var það mikill hluti þess, því að eins og menn muna, þá fór skipið fyrst og fremst með stúdentana, en aðrir, sem með skipinu fóru, voru hér ekki í neinu lúxusferðalagi. Það, að Esja var valin til þessarar ferðar, en ekki Drottningin eða eitthvert annað útlent skip, var beinlínis metnaðarmál okkar, sem sagt að þessi hópur Íslendinga færi með íslenzku skipi, en ekki einhverju skipi með erlendri áhöfn og að öðru leyti óíslenzku.
Það, sem fer þeim á milli, hv. þm. Barð. og forstjóra skipaútgerðarinnar, kemur okkur ekkert við. Nú þegar verið er að fjölga strandferðaskipunum, ætti ekki að verða til neins tjóns eða óþæginda, þótt annað stóra skipið, þ.e.a.s. Esja eða nýja farþegaskipið, væri sent í þessa ferð. Bílvegir liggja nú orðið svo að segja um allt landið og eru færir um langan tíma af árinu, svo að póstsendingar komast fljótar og greiðar með bílunum en oft með skipum. Í stuttu máli: Ég sé ekki, hvað það hefði t.d. að þýða að senda póst með skipi til Vopnafjarðar, þegar hann er á vorin og sumrin sendur daglega með bílum. Bílarnir eru orðnir mikilvæg samgöngu- og flutningatæki og því ekki eins komið undir skipaferðum og áður var. Ég ætla að vona, að ekki fari eins fyrir hv. þm. N-M. og einum ágætum manni, sem var svo vantrúaður á gagnsemi bílanna, að hann lét þau orð falla, þegar þeir voru fyrst að koma til landsins, að þeir yrðu aldrei til neinna nota við framleiðsluna, heldur yrðu þeir lúxusvara, sem að engu gagni kæmi. Pósturinn kemst nú orðið leiðar sinnar með bilunum svo að segja um allt landið. Vestfirðir eru nú komnir í akvegarsambandið, og bráðlega kemur ef til vill vegur yfir Vatnsskarð. Einnig hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að koma afskekktasta og erfiðasta hluta landsins, Austur-Skaftafellssýslu, í kerfið.
Um það að segja, hvort þörf er á báðum stóru skipunum í strandferðir um hásumarið auk allra bátanna og bílanna, þá liggur það í augum uppi, að það er hreinn óþarfi. Það yrði þá helzt lúxusfólk. sem tæki sér far með þeim kringum landið.
Ég álít heppilegt, að málið sé látið ganga til n., en ekki afgr. strax. Hv. þm. N-M. er löngum gjarn á að flýta öllum framkvæmdum miður vel undirbúnum, og mætti þar benda á innflutning hins fræga karakúlfjár, en allir vita, hvað þær aðgerðir höfðu í för með sér.