10.10.1946
Sameinað þing: 1. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (5)
Forseti Íslands setur þingið
Páll Zóphóníasson:
Hvernig er það með boðun þessa fundar eða framhaldsfundar? Hann hefur verið boðaður hygg ég með mjög litlum fyrirvara, og ég sé, að þingmenn vantar enn þá. Ég kann illa við þetta háttalag. Það hefur þrívegis komið fyrir að undanförnu, að láðst hefur að tilkynna mér fundi, og gæti nú ekki verið um þess háttar mistök að ræða?