13.02.1947
Sameinað þing: 29. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í D-deild Alþingistíðinda. (5028)

281. mál, landhelgi Íslands

Pétur Ottesen:

Það fellur að sjálfsögðu í hlut hæstv. utanrrh. að hafa forustu af hálfu Íslendinga í því efni, að úr rætist frá því, sem nú er, um rýmkun landhelginnar við strendur þessa lands. Og þetta mál er þannig vaxið, eins og hér hefur verið lýst, bæði fyrr og síðar, að það er mjög aðkallandi fyrir Íslendinga fyrst og fremst, og þá einnig fyrir þær aðrar fiskveiðiþjóðir, sem hugsa til fiskveiða við strendur Íslands, að það dragist ekki allt of lengi, eftir að fiskveiðiflotinn hjá okkur og annars staðar hefur færzt í aukana eftir styrjöldina, að hér verði nokkur bót á ráðin.

Það er alls ekki rétt, sem fram kom hjá hv. fyrri flm. þessarar þáltill., þm. Str., að það hafi verið hljótt um þetta mál á síðustu tímum hér hjá okkur Íslendingum, því að ég held, að ef flett er upp í Alþingistíðindum, þá sjáist, að á flestum þingum síðan árið 1916 hafi einmitt þessu máli verið hreyft og þá ævinlega rík áherzla á það lögð, að ríkisstj. Íslands gerði það, sem í hennar valdi stæði, til þess að færa út landhelgina. Enda er það kunnugt mál, að sókn þessa máls hefur vakið þá athygli þeirra þjóða, sem stóðu að samningnum, sem hér hefur verið lýst og gerður var árið 1901, að haldnar hafa verið fjöldamargar ráðstefnur um þetta mál, þar sem kröfur Íslendinga og skoðanir þeirra á málinu hafa komið mjög við sögu. Ýmsar fleiri fiskveiðaþjóðir en Íslendingar og Englendingar hafa og komið við sögu hin síðari ár í meðferð þessa máls. Og þetta mál hefur m.a. leitt til þess, að talið er, að það vanti aðeins herzlumuninn nú, til þess að sá flóinn hér við land, sem talinn er vera einhver mesta klakstöð fyrir nytjafisk, Faxaflói, verði með öllu friðaður, bæði fyrir dragnóta- og botnvörpuveiði innlendra og erlendra manna. Þetta skref — þó að ef til vill megi segja, að það sé ekki stórt, samanborið við miklu stærri árangur í þessum efnum — það ber þó þess ljósan vott, að sókn af hálfu Íslendinga í þessu máli, sem staðið hefur nú óslitið í fulla þrjá áratugi, hefur þó komið hreyfingu á málið og borið nokkurn árangur. Hitt er jafnsjálfsagt, að setja markið hærra í þessum efnum og stefna að því kappsamlega að því verði náð.

Sú þáltill., sem hér liggur fyrir, um það að segja upp þessum samningi frá 1901, finnst mér ákaflega eðlilegt, að komi hér fram. Eins og hér hefur verið lýst, er þetta nauðasamningur gagnvart Íslendingum, sem gerður var að þeim forspurðum og á móti þeirra vilja, þar sem samningurinn skerðir stórkostlega hagsmuni Íslendinga. — Um hitt atriðið, eins og um gildi þessa samnings, þá segir hv. 7. þm. Reykv., að í raun og veru mætti líta svo á, að með því að segja þessum samningi upp, þá værum við að viðurkenna gildi þessa samnings. Þetta er ákaflega mikill misskilningur, því að öll barátta okkar í 30 ár fyrir rýmkun landhelginnar er byggð á gildi þessa samnings, því að það hefur verið farið fram á það í þessari baráttu, að færð verði út landhelgi okkar frá því, sem til er tekið í þessum samningi, bæði þannig, að í stað 3 mílna landhelgi kringum landið verði landhelgin færð út og að sá skilningur verði á því hafður — það hefur verið einn meginþáttur í okkar kröfum —, að allir flóar og firðir verði friðaðir kringum landið án tillits til stærðar þeirra. Þetta er vitanlega komið til af því, að með samningnum frá 1901, sem nefndur hefur verið hér, hefur verið opnuð leið inn á firði og flóa fyrir aðrar þjóðir til fiskveiða í skjóli þessara ákvæða samningsins um þriggja mílna landhelgi. Þess vegna erum við fyrir löngu búnir að viðurkenna gildi þessa samnings. Og viðkomandi landhelgisgæzlunni, bæði meðan hún var framkvæmd af hálfu Dana og eins eftir að Íslendingar tóku landhelgisgæzluna í sínar hendur, þá hefur hún mótazt af gildi samnings þessa, hvað landhelgina snertir. Fram hjá þessu verður ekki komizt. Það er því ekki hætta á því, að með uppsögn þessa samnings sé verið að veikja okkur eða okkar aðstöðu neitt, því að ef veikleiki felst í því að hafa viðurkennt þennan samning, þá er sá veikleiki löngu kominn fram í dagsljósið.

Nú fer þessi þáltill. fram á, að þessum samningi verði sagt upp, en felur ekkert annað í sér, ekki það, að teknir verði upp samningar við aðrar þjóðir um takmörk íslenzkrar landhelgi. Og eftir því mætti líta svo á, að Íslendingar hugsuðu sér — ef þeir ætluðu ekki annað að gera nú en að segja upp þessum samningi — að verja a.m.k. fjögurra mílna landhelgi út frá ströndum landsins, út frá þeim grundvelli skoðað, að allir firðir og flóar væru friðaðir sem landhelgissvæði fyrir botnvörpu- og dragnótaveiðum. Þetta yrði þá vitanlega að byggjast á því, að Íslendingar væru þess megnugir að geta varið þetta svæði upp á eigin spýtur og án þess að samningar hafi komið þar til við aðrar þjóðir, sem leitað hafa hingað á fiskimiðin og mundu reyna að gera það áfram — sem sagt, að Íslendingar væru þess megnugir að verja þessa landhelgi —, því að annars kæmi þessi ráðstöfun ekki að liði fyrir Íslendinga. Þótt ég bendi á þetta, vil ég engan veginn gefa í skyn, að óhugsandi sé, að við ættum þeim skilningi að mæta hjá erlendum fiskveiðaþjóðum, sem sækja á miðin við Ísland, að þeir vildu hlíta ákvörðun okkar um útfærslu landhelginnar. Þar verða mér fróðari menn í þessum sökum að koma til og segja um, hvort ekki sé hyggilegra fyrir okkur, jafnframt sem við segjum nú upp þessum samningi — sem ég lít svo á, að sé sjálfsagt að gera, — að leita út á við samninga um þessi mál og freista þess að fá viðurkenningar annarra fiskveiðaþjóða á þeirri rýmkun landhelginnar. sem við keppum að. Og eins ber í þessu sambandi að athuga það — og því skýt ég fyrst og fremst til hæstv. utanrrh. og þeirra manna annarra, sem kæmu til með að fjalla um þetta mál —, hvort það mundi út af fyrir sig valda nokkrum erfiðleikum gagnvart því, að við næðum þeim áfanga, sem virðist skammt undan að geta náð, að fá viðurkenningu fyrir algerri friðun Faxaflóa. Þetta þarf allt að taka til athugunar í sambandi við þetta mál.

Það eru að sjálfsögðu allir sammála um það, hver nauðsyn er hér á ferð, þ.e. rýmkun landhelginnar, fyrir framtíð Íslendinga, að því leyti sem hún byggist á utanríkisverzlun okkar, sem hvílir nú að langmestu leyti á því, að við getum sótt verðmæti í djúp hafsins. Hitt er ekki gott að segja um, en vel getur náttúrlega farið svo, að hinn annar höfuðatvinnuvegur landsins, landbúnaðurinn, eigi þá framtíð fyrir sér, að hann verði í miklu ríkara mæli en nú er þess megnugur að bera uppi okkar utanríkisverzlun til viðbótar því hlutverki, sem hann innir nú af hendi um framleiðslu á vörum til beinnar neyzlu fyrir þjóðina. En hvað sem þessu líður, á Ísland mikið undir því, hvað framtíð þess snertir, að Íslendingar fái meira olnbogarúm til eigin yfirráða á hafinu við strendur landsins en þeir nú hafa. Og auk þess eiga að sjálfsögðu allar fiskveiðiþjóðir, sem fiskveiðar stunda í námunda við strendur þessa lands, mikið undir því, að stóraukinni friðun fiskistofnsins verði komið á hér við strendur landsins. Og að því leyti, sem mál þetta kann að þurfa að sækja eftir samningaleiðum, þá verður vitanlega þetta sjónarmið þyngst á metunum hjá þeim, sem við eigum að sækja þessa samninga undir, að það sé einnig þeirra hagsmunamál, að landhelgin verði færð út, jafnframt því sem það er hagsmunamál okkar Íslendinga. Ég vil þess vegna mjög mæla með því, að þessi till., sem hér er mjög eðlilega fram borin, verði tekin til mjög gaumgæfilegrar athugunar, jafnframt því sem það sé athugað, hvort ekki sé rétt að kveða svo á í till., að jafnframt sé stjórninni falið að leita viðurkenningar á alþjóða vettvangi fyrir fyrirhugaðri rýmkun landhelginnar.

Mér er kunnugt um það, að í utanrrn. liggja fyrir skjöl um ákvarðanir þær, sem Bandaríkin hafa tekið í landhelgismálum hjá sér, og hefur verið á það minnzt, og eins og hér hefur komið fram í umr., að að því leyti, sem hér gæti verið um alþjóðamál að ræða, gæti verið styrkur að því, að hið mikla stórveldi, Bandaríkin, hefði tekið upp þá stefnu, sem Íslendingar hafa barizt fyrir í 30 ár, og að ráðstafanir verði gerðar til friðunar fiskistofninum. Hitt er atriði út af fyrir sig, að landgrunnið hér getur haft í sér fólgin auðæfi, sem með nýrri og aukinni tækni gæti verið hægt að hagnýta sér, eins og Bandaríkin gera ráð fyrir úti fyrir ströndum Bandaríkjanna. Hvað hitt snertir, þá er aðalatriðið, eins og nú horfir við, að koma á aukinni friðun til verndar fiskistofninum. Hv. 2. þm. Reykv. (EOl) minntist á það, að annað stórveldi, Rússland, hefði uppi sams konar stefnu í þessum málum og Bandaríkin, og þar sem þessi stefna er vafalaust stefna framtíðarinnar, ætti í þessu að vera styrkur fyrir Íslendinga og aðrar þjóðir, sem mikið eiga undir fiskveiðunum, að þessi mál þokist áfram frá því, sem nú er, þannig að friðun fiskistofnsins aukist.