13.02.1947
Sameinað þing: 29. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í D-deild Alþingistíðinda. (5029)
281. mál, landhelgi Íslands
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Svo sem mönnum er kunnugt, er það eitt af höfuðstefnuatriðum núverandi stjórnar að beita sér fyrir stækkun íslenzkrar landhelgi, og er það fagnaðarefni, að Alþ. skuli sýna áhuga sinn fyrir þessu máli með því að flytja þessa till., sem hér er komin fram. Það er að vísu rétt, að það hefur lengi verið áhugamál margra að fá landhelgina stækkaða, þó að með mismunandi hætti sé, og má ekki blanda saman, þótt íslendingar vilji fá tiltekin veiðisvið friðuð, bæði sjálfra sín og annarra. Það er atriði, sem í eðli sínu er óskylt sjálfri stækkun landhelginnar, en einnig að öðru leyti hafa verið uppi umr. um þetta mál nú alllengi, þó að menn hafi ekki beitt sér fyrir stækkun landhelginnar almennt. Það er og rétt að geta þess, að á fiskimálaráðstefnu, þar sem núverandi hæstv. forsrh. (StJSt) átti sæti, bar hann fram kröfu um stækkun landhelginnar, þó að hún næði ekki fram að ganga. Þá er og rétt að geta þess, að s.l. haust skipaði þáv. forsrh. (ÓTt) svo fyrir, að utanrrn. skyldi hefja undirbúning að rannsókn, sem nauðsynleg væri til þess að geta borið fram kröfur um landhelgisstækkun, og eru þær rannsóknir nú í framkvæmd. Þjóðréttarfræðingur, sem s.l. haust var ráðinn til utanrrn., Hans Andersen, mjög fær maður, hefur tekið þetta mál að sér og er að viða að sér gögnum um þetta efni til þess að geta orðið vopnaður í þeirri baráttu, sem fram undan er, vegna þess að fyrirsjáanlegt er, að þetta fæst ekki baráttulaust. Hins vegar er ég sannfærður um, að það er ekki tímabært að hefja þá baráttu gegn öðrum þjóðum fyrr en menn eru búnir að afla allra gagna og kynna sér, hvernig með þessi mál er farið hjá öðrum og í skiptum annarra ríkja. Það eru um þetta ýmsar kenningar hjá öðrum þjóðum, og um það þarf að afla sér gagna erlendis frá, eins og nú er gerð gangskör að fyrir fyrirmæli Ólafs Thors.
Hv. þm. Borgf. gat um það sem meginþátt þessa máls, að það væri út af fyrir sig algerlega óvíst, hversu nærri við værum óskum okkar, þó að við værum búnir að fá þennan samning felldan úr gildi. Ég tel víst, að ekkert sé því til fyrirstöðu út af fyrir sig að segja honum upp og hann gæti þá fallið úr gildi eftir tilsettan tíma, en hvernig á næsta skrefið að vera og hverju erum við nær? Ég er ekki á þessu stigi málsins tilbúinn að gera þinginu grein fyrir, hverra frekari aðgerða er þörf, en að svo miklu leyti sem því hefur verið haldið fram og líkindi eru til, að því verði haldið fram af hálfu Bretlands, að hér sé um alþjóðamál að ræða, þá stöndum við í alveg sömu sporum, og eins og hv. þm. Borgf. sagði, kemur þá til, hvort við getum stækkað landhelgi okkar gegn mótmælum þessara aðila, ekki aðeins á pappírnum, heldur einnig í framkvæmd.
Nú er það svo. eins og getið hefur verið um í umr., að vísu með óákveðnum orðum, að ýmis stórveldi hafa fært út yfirráðarétt sinn yfir hafinu, stækkað landhelgina. Ég hef þó hugboð um það, að þegar slík stækkun hafi verið viðurkennd, þá hafi haldizt þau réttindi, sem aðrar þjóðir hafa haft á hinum rýmkuðu svæðum, þ.e.a.s. að fiskveiðar annarra þjóða, að svo miklu leyti sem sannanlegt er, að þær hafi átt sér stað fram að þeim tíma, hafi ekki lagzt niður þrátt fyrir einhliða yfirlýsingu þessara þjóða. Ef slík stórveldi hafa orðið að hafa slíkan fyrirvara, má nærri geta, hvað verður með okkur. Nú hef ég ekki skoðað þetta mál ofan í kjölinn og er ekki kominn til að segja, að þetta, sem ég segi, þurfi að standa, en þetta er eitt af þeim höfuðatriðum, sem þarf að rannsaka til hlítar, bæði hvaða háttur hefur verið hafður um þetta, hverjir dómar hafa gengið, sem miklu þýðingu geta haft um þessi efni, og mörg önnur atriði, sem til greina geta komið.
Ég held, að meðan ekki liggja fyrir fullkomnar skýrslur um þetta, fullkomin gögn, sem ég tel, að þurfi að safna sem fyrst og gera að uppistöðu, sé tæplega tímabært að taka ákvörðun um, hver einstök skref eigi að stíga í þessu máli. Ég tel, að það eigi að fela stjórninni, svo sem hugur hennar stendur til, að gera allt í samráði við Alþ. og utanrmn., ef Alþ. ekki starfar, til að koma þessu máli áfram svo fljótt sem unnt er.
Eitt, sem til álita kemur, er það, hvort tímabært er að segja þessum samningi upp, en ég er ekki reiðubúinn til þess á þessari stundu að svara því. Ég veit, að ýmsir, sem hafa hugsað um málið, efast um það, að á þessu stigi sé sá undirbúningur réttur, en ég tel mig ekki hafa þau gögn í höndum, að ég geti kveðið upp sjálfstæðan dóm um þetta. Það verður að athugast í utanrmn., en það verður ekki undan því komizt, að hér er ekki fyrst og fremst um að ræða gildi einstaks samnings, heldur gildi óskráðra alþjóðareglna, þ.e.a.s. að alþjóðal. gilda í þessu efni og við höfum ekki mátt til að framfylgja öðru en því, sem stórveldin vilja viðurkenna. Nú kemur stórveldunum ekki saman um þetta, og er þá sjálfsagt fyrir okkur að ganga á það lagið og fara eins langt og við getum, en það er hætt við, að það sé þýðingarlaust fyrir okkur að setja um þetta aðrar reglur en viðurkenndar eru af þeim í heild, vegna þess að við höfum ekki mátt til þess að fylgja öðru fram.
Nú er það eitt af þeim viðfangsefnum, sem liggja fyrir Sameinuðu þjóðunum, að koma upp heildarreglum um réttindi og skyldur ríkja. Ég hef ekki kynnt mér til hlítar, hver fyrirmæli eru þar um landhelgi og landhelgisstjórn, en vissulega gæti það komið til greina í sambandi við þetta mál að koma inn fyrirmælum um stjórn landhelgismála, sem gæti orðið viðhlítandi fyrir okkur Íslendinga, að koma inn slíkum fyrirmælum með þeim hætti, að aðrar þjóðir treystu sér ekki til að ganga á móti því.
Leiðirnar eru margar, og ég tel rétt um leið og þessi till. er komin fram, að við í sambandi við hana athugum í utanríkismálan. um það, hvort þetta ætti að gera sem fyrst, t.d. áður en við gerum okkur grein fyrir, hvað ætti að gera næst.