10.02.1947
Sameinað þing: 27. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í D-deild Alþingistíðinda. (5043)
282. mál, varahlutar til bifreiða
Flm. (Jónas Jónsson):
Herra forseti. Ég þarf ekki að mæla nema fá orð um þessa till. Hún er flutt í samráði við þá menn, sem ekki geta unnið, vegna þess að bifreiðar þeirra eru ekki akfærar sökum skorts á varahlutum, sem til þeirra þarf. Það er vitað, að mikil kaup herbifreiða og jeppa-innflutningur auk annarra bifreiða gerir það að verkum, að sinna verður meira þessu máli en verið hefur og ætla meira fé til þessa en áður. Enginn kaupir meira af þessari vöru en hægt er að selja, og verður þá ekki nein óþarfa gjaldeyriseyðsla. Það er hins vegar mikill óhagur, að bifreið, er kostar tugi þús. kr., stendur óhreyfð vegna skorts á varahlutum, og eru margir í stökustu vandræðum vegna þessa. Hvort sem till. verður vísað til fjvn. eða allshn., ætti að verða samkomulag um að sinna þessu nauðsynjamáli.
Ég geri ekki neina sérstaka till. um það, til hvaða n. skuli vísa þessu máli, en beini því til hæstv. forseta að gera það.