05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í D-deild Alþingistíðinda. (5045)

282. mál, varahlutar til bifreiða

Frsm. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað till. á þskj. 328, sem er flutt af hv. þm. S-Þ., um gjaldeyri til kaupa á varahlutum til bifreiða. Þm. hafa lesið þessa till. og gert sér grein fyrir, hvernig hún er. Hún er flutt af hv. þm. vegna þess, að borið hefur á því undanfarið, að varahlutir til bifreiða hafa ekki alltaf verið fyrir hendi, þegar bílanir hafa komið fram. Ég býst þó við, að núna á undanförnum árum hafi það verið ýmislegt annað en gjaldeyrisleyfin, sem hefur valdið því, að oft hefur reynzt ókleift að fá þessa varahluti. Ég býst við, að undanfarið hafi þessi ekla á varahlutum eins stafað af því, að erfiðleikar hafi verið á að fá þá afgreidda frá verksmiðjunum. Það kemur í ljós, að árið 1946 eru veitt of mikil innflutningsleyfi fyrir varahlutum í bifreiðar. Leyfin hafa ekki nærri öll verið notuð, og kemur það til af því, að leyfishafar hafa ekki fengið varahlutina afgreidda frá verksmiðjunum út á leyfin, sem þeir höfðu í höndum.

Það er auðvitað, að það er mjög slæmt, ef varahlutir eru ekki fyrir hendi, þegar bifreiðar bíla, sem kannske eru notaðar til nauðsynlegra starfa allan ársins hring, og allir skilja, að það er mjög nauðsynlegt að styðja að því eftir beztu getu, að varahlutir verði fyrir hendi. Þess vegna leggur n. til, að till. verði vísað til ríkisstj. í trausti þess, að hún geri þær ráðstafanir á hverjum tíma, sem nauðsynlegar eru til þess að varahlutir verði fyrir hendi, eftir því sem þörf krefur. Einhver mun nú kannske segja, að eins hefði verið hægt fyrir n. að samþykkja till. eins og hún lá fyrir, og skal ég ekki mæla á móti því, að það hefði nú kannske verið eins eðlileg afgreiðsla. En till. hljóðar þó þannig, að samkv. henni er skorað á ríkisstj. að hafa til nægilega varahluti í allar bifreiðar, hvernig sem gjaldeyrisástandið er, og ég hygg, að það fari betur á því að afgreiða till. eins og allshn. leggur til en að samþykkja hana beinlínis með þeirri orðanna hljóðan, sem henni fylgir. Það kemur fram hjá allri allshn. skilningur á þeirri nauðsyn, að á hverjum tíma séu fyrir hendi varahlutir í bifreiðar, og allshn. afgreiddi till. á þann hátt að vísa. henni til hæstv. ríkisstj. í trausti þess, að hún sé bær um að styðja að því, að gjaldeyrir verði veittur fyrir varahlutum til bifreiða, eftir því sem geta okkar leyfir hverju sinni. — Ég sé svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum fyrst um sinn.