06.02.1947
Sameinað þing: 26. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í D-deild Alþingistíðinda. (5065)

285. mál, nýir vegir og brýr

Flm. (Jónas Jónsson):

Herra forseti. Þessi till, er að nokkru leyti byggð á brtt. hv. þm. Barð., sem hann flutti við till. okkar 2. þm. Rang. um athugun á leiðinni um Holtamannaafrétt og Sprengisand. Mörgum finnst heppilegt að láta þetta mál ekki bíða lengur, og þess vegna sýndist okkur rétt að flytja það nú.

Það er sá munur á þessari þáltill. og brtt. hv. þm. Barð., þar sem hann vill orða alveg um þáltill. okkar um athugun á leiðinni um Holtamannaafrétt og Sprengisand, að hann vill láta rannsaka vegi í byggðum, og er í sjálfu sér ekkert á móti því, en við viljum einnig láta rannsaka aðrar leiðir, þ.e.a.s. leiðir í óbyggðum, sérstaklega þegar þess er gætt, að með orlofsl. er búið að skylda mörg þús. Íslendinga til þess að ferðast einhvern hluta ársins, og þykir mörgu af þessu fólki jafnánægjulegt að heimsækja fagra staði í öræfum og óbyggðum eins og í sveitum.

Hvað viðvíkur stöðum eins og Kili, Kaldadal og Sprengisandi og fleiri fjallvegum, þá er mjög auðvelt að gera þar veg með jarðýtu og ryðja burt með henni steinum og lausagrjóti. Auðvitað dettur engum manni í hug að gera veg yfir Sprengisand eða aðra fjallvegi með jafnmiklum tilkostnaði og vegi yfir fjölbyggðar sveitir, eins og t.d. yfir Flóann. Þess vegna vil ég vænta þess, að hv. þm. samþykki þessa till. okkar 2. þm. Rang., og vil ég leggja til, að henni verði vísað til hv. fjvn.