06.02.1947
Sameinað þing: 26. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í D-deild Alþingistíðinda. (5071)

285. mál, nýir vegir og brýr

Flm. (Jónas Jónsson):

Herra forseti. — Ég held, að það sé í rauninni ofrausn af hv. þm. Barð. að vilja heimta af hv. allshn., að hún ógildi þá athugun, sem við hv. 2. þm. Rang. leggjum til, að gerð verði, með till. okkar. Hv. allshn. hefur gengið frá sínu áliti og leggur til, að till. verði samþykkt.

Hv. þm. veit kannske ekki, að þessi till. um athugun á leið yfir Sprengisand er ekki aðeins í þágu Norðlendinga, heldur fellur hún inn í þann ramma, sem vakir fyrir hv. þm. Rang. Rangárvallasýsla er þannig sett, að hún hefur lakastar afréttir af öllum stórum sýslum landsins, og er auðsætt, hvort það hafi ekki áhrif á framleiðslu þessarar stóru sýslu að verða að reka fé sitt yfir Tungnaá bæði vor og haust, og er þess að vænta, að þessi á verði brúuð. Mundi slíkt hafa mikla þýðingu fyrir atvinnulíf í Rangárvallasýslu.

Í sambandi við þetta mál ber og að geta þess, að stórir hópar af hraustu æskufólki eru farnir að iðka ferðalög upp í öræfin á sumrin, og er það viljugt að leggja á sig stórar byrðar til þess að ryðja úr vegi þeim erfiðleikum, sem á leið þess verða. Ferðalög inn í óbyggðir landsins hafa og aukizt mjög, síðan jeppabifreiðarnar komu til sögunnar, og ber þetta glöggan vott um áhuga fólksins fyrir þessum leiðum. Slík ferðalög eru okkur Íslendingum í blóð borin, því að allir vita, að fyrr á tímum var það hátíð sveitamannanna að fara í göngurnar á haustin.

Með vexti bæjanna er það út af fyrir sig sjálfsagt atriði, að þeim sé séð fyrir nægilegri mjólk, en á það má líka líta, að þúsundir manna í bæjum landsins eru viljugar að leggja á sig mikið erfiði til þess að sækja í sig lífskraft upp í öræfin. Er slíkt stórkostlega mikils virði fyrir menningu okkar. Það er því rangt af hv. þm., ef þeir vilja sporna fæti við því máli, sem hér er á ferðinni. Þegar til dæmis Akureyringar eru að glíma við að ryðja vegi til þess að komast upp á sandana, þá er ekki ósanngjarnt, að ríkið komi á móti og verji fé til þess, að ýta gangi á söndunum. Það er auðvitað nauðsynlegt fyrir bæjarbúa, að akvegasamband sé við nærliggjandi sveitir, svo að þeir geti fengið þaðan mjólk og aðrar landbúnaðarafurðir, en það er engu síður nauðsyn fyrir bæjarbúa að þurfa ekki að ala alla ævi sína á mölinni og geta brugðið sér upp á öræfin í frístundum sínum. Ég get ekki lastað vegamálastjóra fyrir að beita sér fyrir vegalagningu upp á Kjöl, því að það er dýrðlegur staður, og nú eru Skagfirðingar og Húnvetningar að reyna að brjótast þangað, og Eyfirðingar og Suður-Þingeyingar reyna að fá veg yfir Sprengisand. En málið liggur nú sem sagt þannig fyrir, að ég og hv. 2. þm. Rang. viljum hafa samkomulag við hv. þm. Barð. og óskum eftir því að fá okkar málum framgengt, er hann hefur fengið sitt fram.