06.02.1947
Sameinað þing: 26. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í D-deild Alþingistíðinda. (5074)

285. mál, nýir vegir og brýr

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. — Það hefur nú teygzt úr þessari umr. meir en ástæða er til, en út af línuritinu margumtalaða þá hefur nú hv. 1. þm. Rang. upplýst, að það, sem ég sagði, var rétt. (GJ: Það var rangt.) Nei, það var fullkomlega rétt, og ætti hv. þm. ekki að kasta svona fram. Ummæli hans um þetta voru algerlega röng, eins og reyndar flest, sem hann hefur sagt um þetta mál. Hann taldi mig t.d. hafa tekið um 200 þús. kr. í Krýsuvíkurveginn fram yfir áætlun. Þetta er fullkomlega rangt. Í hann fór ekki meira en áætlað var. Hins vegar fór hreppsnefnd Selvogshrepps fram á að fá fé að láni til vegagerðar og enn fremur, að vegagerð ríkisins sæi um hluta verksins, til þess að þeir gætu gert akfært heim til sín. Selvogshreppur hefur ekki haft akveg, og er honum ekki minni nauðsyn á honum en mörgum hreppum Barðastrandarsýslu, og er ekki nema eðlilegt, þegar ekki vantar nema 2 km til að komast í hið langþráða akvegasamband, að þeir vildu fá fé til þessara framkvæmda. En hér var ekki að ræða um fé ríkisins, heldur tóku þeir lán og fengu loforð um endurgreiðslu, þegar fé yrði veitt á fjárlögum. Þetta veit hv. þm. Barð.

Skal ég svo ekki fara nánar út í þetta. Það er ekki nema eðlilegt og sjálfsagt að veita umframgreiðslu til staða, bar sem svo stendur á, að ella yrði að hætta við hálflokið verk, og byrja þá ekki á öðrum stað, þar sem ekki yrði heldur hægt að ljúka verkinu. Það er ólíkt hagkvæmara að geta einbeitt sér í einum stað en vera að peðra þetta í fjölda staða, þar sem ekki er hægt að gera nema lítið á hverjum stað. Þegar menn því sjá, að lítið vantar á, að verkið á einhverjum stað komi að fullum notum, þá hefur ráðuneytið stundum gengið inn á að veita umframgreiðslu upp á væntanlega endurgreiðslu síðar og alveg sérstaklega, ef viðkomandi sveitarfélag hefur lagt fram féð gegn yfirlýsingu um endurgreiðslu, er fé yrði síðar veitt til þess í fjárlögum. Ég veit, að hv. þm. skilja þetta yfirleitt, þó að hv. þm. Barð. geri það kannske ekki.