10.02.1947
Sameinað þing: 27. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (5092)

333. mál, húsaleigulöggjöf

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Ég sé ekki ástæðu til að ræða neitt um húsaleigulöggjöfina og framtíð þeirrar löggjafar, en vil aðeins að gefnu tilefni út af framkomu þessarar þáltill. geta þess, að á seinasta Alþ. var borið fram frv. um breyt. á húsaleigulöggjöfinni. Það mál var afgr. af Alþ. á þá leið, að ákveðið var að vísa málinu til félmrn., sem léti fara fram endurskoðun þeirrar löggjafar. Félmrn. skipaði s.l. vor þriggja manna n. til þess að framkvæma þessa endurskoðun, og í þeirri n. var fulltrúi frá húseigendum, leigjendum og einn frá húsaleigun. Eftir því, sem ég veit bezt, er að vænta till. þessarar n. mjög fljótlega, en mér er ókunnugt, hverjar till. n. verða. Strax þegar þær eru komnar til félmrn., mun það taka til athugunar, hvað rétt er að gera í þessum efnum, og má þá eiga þess von, að eitthvað yrði lagt fyrir Alþ. varðandi þetta mál. Ég er því samþykkur, að umr. um þetta mál verði frestað og till. vísað til n., en síðar gefst vonandi tækifæri til þess að leggja fram eða skýra eitthvað í sambandi við þetta mál hér á hæstv. Alþ.