10.02.1947
Sameinað þing: 27. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (5093)

333. mál, húsaleigulöggjöf

Flm. (Jónas Jónsson):

Mér var, eins og fleiri hv. þm., kunnugt um þá nefndarskipun, sem hæstv. félmrh. minntist á. En sú n. virðist vera ein af þessum eilífðarnefndum og virðist sett til þess, að ekkert gerðist í þessu máli. Þetta mál er ekki svo flókið, að n. hefði ekki getað verið búin að skila áliti fyrir löngu, ef hún hefði viljað vinna að málinu. Þau vandkvæði og það úrræðaleysi, sem ríkir í þessum málum, er þess eðlis, að það er rétt, að fleiri en félmrn. fái eitthvað að vita um óskir manna í þessum efnum.