10.02.1947
Sameinað þing: 27. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (5094)
333. mál, húsaleigulöggjöf
Páll Zóphóníasson:
Það mun nú vera 21/2 mánuður síðan einn hv. ráðh. gaf í Ed. sömu upplýsingarnar um væntanlegt frv. frá þessari n., eins og nú eru gefnar hér af hæstv. félmrh., þess væri von bráðlega og yrði lagt fyrir Alþ. alveg næstu daga. Hæstv. núv. forsrh. var ekki eins ákveðinn og þessi ráðh. í Ed., og vegna þess, hvernig sú ráðherraumsögn hefur rætzt, vil ég biðja hæstv. forsrh. að ýta á eftir þessu, svo að þetta verði ekki aftur að deiluorði.
Í þessu sambandi langar mig til að heyra annað. Það voru samþ. hér í fyrra l. um opinbera aðstoð við húsabyggingar. Í þeim l. var heimild fyrir ríkisstj. til að skammta byggingarefni. Mig langar til að vita, hvernig ríkisstj. hefur notað þessa heimild. Það liggur fyrir, að það hefur vantað byggingarefni til að koma upp íbúðarhúsum fyrir fólk, sem hefur ekkert annað við að vera en lélega bragga og skúra. Á sama tíma og ekki hefur fengizt byggingarefni til slíkra bygginga hefur fengizt nóg byggingarefni til að byggja sumarbústaði, sem menn eru í 1–3 mánuði á ári, en standa auðir hinn tíma ársins. Svoleiðis bústaðir munu hafa verið byggðir í tuga- eða hundraðatali s.l. sumar á sama tíma og ekki hefur fengizt byggingarefni til lífsnauðsynlegra bygginga. Mig langar nú til að heyra, hvernig hagað hefur verið þessari skömmtun og hvernig núverandi hæstv. ráðh. hugsar sér að haga því, hvort hann ætlast til, að byggingarefni verði skammtað til óþarfabygginga.