10.02.1947
Sameinað þing: 27. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í D-deild Alþingistíðinda. (5096)
333. mál, húsaleigulöggjöf
Skúli Guðmundsson:
Mér skildist á ræðu hæstv. forsrh. áðan, að hann telji, að meiri vöntun hafi verið á vinnuafli til þess að koma upp byggingum og fjármagni til þeirra hluta en á byggingarefni. Ég veit ekki, hvernig þetta kann að vera eða hafa verið á síðustu tímum hér í Reykjavík, en ég vil út af þessu taka fram, að það hefur verið tilfinnanlegur skortur s.l. ár og er enn á byggingarefni víða annars staðar á landinu, sérstaklega þó á timbri og járni. Mér er kunnugt um, að þar hefur víða skort efni til íbúðarhúsabygginga og annarra bygginga, sem menn hafa viljað reisa, og af þeim ástæðum hefur orðið minna um byggingarframkvæmdir en ella, því að menn hafa ekki getað fengið efni til bygginganna, þótt þeir hafi fjármagn og vinnuafl til þess. Ég tel því, að það sé þörf á því að taka þetta atriði til nánari athugunar en gert hefur verið nú að undanförnu.
Um þessa till., sem hér liggur fyrir, vil ég segja það, að ég er sammála hv. flm. um það, að ástandið í húsnæðismálunum sé óviðunandi, eins og það hefur verið um skeið. Ég skal nú ekki dæma sérstaklega um þau þrjú höfuðatriði, sem flm. telur, að þurfi að breyta í þessari löggjöf, en vil segja það, að ég tel, að það séu ekki þau heppilegustu vinnubrögð að bera fram slíka till. sem þá, sem hér um ræðir. Í till. er lagt til að skora á ríkisstj. að leggja frv. um þetta efni fyrir Alþ. Mér hefði fundizt heppilegra fyrir flm., fyrst hann var búinn að gera sér grein fyrir því, hverjar breyt. þyrfti að gera, að hann hefði sjálfur komið með frv. um að breyta húsaleigul. á þennan hátt. Það hefði verið betra og heppilegra að koma þannig beint að efninu strax en að flytja till. um það að skora á annan aðila að undirbúa frv. um þetta og leggja fyrir Alþ. Mér skilst, að það tæki minni tíma fyrir þingið að afgreiða slíkt mál, ef það kæmi fram ákveðið frv. um það, en þó að slík þáltill., sem hér er lögð fram, sé flutt í þinginu. Það má gera ráð fyrir því, að þessari þáltill. verði vísað til n. — hver veit, hvað lengi hún verður þar til athugunar — og er þá að óþörfu spillt ef til vill löngum tíma, sem hefði mátt nota til þess að athuga og þoka áfram frv. um málið, ef það hefði verið lagt fyrir.