10.02.1947
Sameinað þing: 27. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í D-deild Alþingistíðinda. (5114)
329. mál, menntaskólinn í Reykjavík (till.GÞG og JJ)
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég tel það sízt að ófyrirsynju, að Alþ. geri ályktun um þetta mál, og að því leyti fagna ég þeirri till., sem hér er til umr. Aðalsjónarmiðið, sem ég tel, að hljóti að ráða í þessu máli, er það, hvar skólinn er talinn bezt settur í bænum, og ef málið er skoðað frá því sjónarmiði, blandast engum hugur um það, að menntaskólinn verður ekki settur á heppilegri stað en hann er nú á. Ég efast um, að margar stofnanir séu í bænum fyrir utan barnaskólana, þar sem fleiri koma saman daglega. Hugsum okkur, að hér væri um að ræða ráðhús eða stjórnarráðsbyggingu eða aðrar stórbyggingar. Ekki mundi okkur detta í hug að setja þær í eitthvert úthverfi bæjarins, heldur miðsvæðis, ef svo mætti segja, og það væri áreiðanlega heppilegast, svo að viðskiptamennirnir þyrftu ekki að fara langar leiðir til að ljúka erindum sínum. Þó kæmi hverfandi lítill fjöldi fólks í slíkar opinberar byggingar daglega, miðað við skóla eins og menntaskólann með 400–500 nemendum, sem flestir eru unglingar og þurfa að koma einu sinni eða oftar í skólann á hverjum degi, og ég held, að þetta verði að ráða mestu um staðinn. Það efast ég ekki um, að heppilegri staður verður ekki fundinn fyrir skólann en sá, sem hann er nú á. Hann er þannig settur, að um ófyrirsjáanlega framtíð kemst meginþorri gangandi manna á þennan stað án of mikils erfiðis. Ef skólinn væri hins vegar ekki miðsvæðis, að ég tali nú ekki um Laugarnes eða jafnvel Golfskólahæðina, væri hann svo langt frá stórum bæjarhlutum, að fátækir nemendur eða aðstandendur þeirra yrðu daglega að eyða miklu fé í aksturskostnað eða ríkið eða bærinn yrði algerlega að kosta þær ferðir, og sá kostnaður verður svo mikill, að hann samsvarar vöxtum af hárri upphæð, sem ég tel betur varið til kaupa á lóðum bak við menntaskólann og bygginga þar, þótt þær framkvæmdir kosti að vísu mikil útgjöld. Því er að vísu haldið fram, að æskilegt væri, að skólinn væri nær leikvöllum. Ég get raunar ekki skilið það. Skólahald er að vetrinum til, þegar erfitt er um útiíþróttir nema skauta- og skíðaferðir, skólinn getur ekki legið betur við skautaferðum en hann gerir nú, og um skíðaferðir hefur staður hans í bænum ekki mikið að segja og raunar ekkert. Um skautaferðir hafa heimili nemenda líka meira að segja en skólastaðurinn. Þegar aftur á móti kemur fram á vor, er mikill annatími í skólanum, upplestrarleyfi og próf, og því er tómt mál að tala um það, að aðstaða til útileikja eða íþrótta hafi svo mikla þýðingu á þeim tíma árs. Enda þótt skólinn yrði á Golfskálahæðinni, yrðu golfiðkendur þar áfram með sína íþrótt, og í rauninni yrði ekki rýmra um skólann þar en í bænum, hann yrði umkringdur af landi Golffélagsins. Í Fossvoginum er að vísu hið fegursta byggingarland, og um Golfskálahæðina vil ég þá segja, að ég játa, að skóli er ólíkt betur settur þar er inni í Laugarnesi, sem er verst valdi staðurinn, sem hægt er að finna, og ég fagna því, að horfið skuli vera frá því ráði.
Aðrar ástæður, sem færðar eru fram gegn núverandi stað skólans, eru t.d. þær, að hann sé of nærri umferðinni. Það er að vísu ráðgert, að umferðargata mikil komi þar, sem nú er Amtmannsstígur, en fróðir menn segja, að engin vandræði þurfi að stafa af því, þar eð haga megi byggingum þannig, að umferðin verði ekki til truflunar. Í því sambandi má benda á Miðbæjarbarnaskólann til samanburðar, og eru þar þó börn, en ég held engum dytti í hug að flytja barnaskólann út í enda bæjarins. Menntastofnanir eru víða við umferðargötur, án þess að það trufli nokkuð kennsluna. Ég held því, að þessi ástæða sé tylliástæða. Mér virðast sumir miða þessa skólabyggingu hér allt of mikið við það, sem tíðkast hjá stórum og ríkum þjóðum, þar sem nemendur búa algerlega í heimavistum skólans, eins og t.d. í Eton. Þegar svo hagar til, er sjálfsagt að hafa skólann afsíðis. En heimavistir eru hér alltaf aukaatriði, þar sem nemendur skólans dvelja flestir heima, og væri þá nær að byggja sérstakan skóla með heimavistum, ef þess gerðist þörf, og raunar mætti byggja heimavistarhús á gömlu lóðinni hér við skólann. Samanborið við önnur lönd fær það ekki staðizt að flytja skólann, þar sem vitað er, að skólar eru víða inni í borgum, og dettur engum í hug að flytja þá, ef þeir eru daglega sóttir af borgarbúum.
Þá er enn eitt atriði, að mönnum blöskrar kostnaðurinn við að kaupa lóðirnar í kringum skólann. En sömu menn bölsótast mest yfir gömlu hverfunum í bænum og vilja, að þau hverfi. Ég játa, að þessu fylgir töluverður kostnaður. En ég vil halda því fram, að sá kostnaður fáist endurgreiddur að miklu leyti í því, að skólinn verður áfram miðsvæðis í bænum. Að vísu þyrfti að snara út öllum höfuðstólnum nú eða bráðlega fyrir þessar lóðir, en aukinn kostnaður við að hafa skóla í úthverfi bæjarins greiddist smám saman, en þó er þess að gæta, að miklu þyrfti að kosta til að undirbúa lóðir á Golfskálahæðinni, ef skólinn væri settur þar. En hitt játa ég, að lóðirnar kringum menntaskólann eru dýrar, en það er skoðun mín, að kostirnir við að hafa skólann áfram á sínum gamla stað séu þó yfirgnæfandi. Þótt eingöngu sé litið praktískt á þetta mál, en sleppt minningahliðinni, þá eru kostir við að hafa skólann áfram á þessum stað svo miklir, að ekki má horfa í þann kostnað, sem af lóðakaupunum leiðir. Ég sé ekki, að nauðsynlegt væri að taka endilega allt landið í einu, borga þetta allt í einu. Ef hús K.F.U.M. væri t.d. keypt, mætti nota það um sinn í þágu skólans. Ég skil vel, að rektor kysi fremur að flytja inn í nýtt hús, sem mundi kosta margar milljónir, en þetta er affarasælla til frambúðar. Og ég vil aftur benda á þetta, sem að vísu ræður ekki úrslitum í þessu máli, að hér á landi eru fáir slíkir staðir frá seinni öldum sem Menntaskólinn í Reykjavík, er geymi í jafnríkum mæli sýnilegar söguminningar, er hlýi mönnum um hjartaræturnar, bæði menntamönnum og þjóðinni allri. Til greina kæmi sú hugmynd byggingameistarans, að húsið yrði flutt til og látið standa við Bókhlöðustíg á lóð þeirri, sem Hið íslenzka olíufélag hefur haft umráð yfir og notað fyrir starfsemi sína, og yrðu þá húsin við Bókhlöðustíg rifin og skólanum komið fyrir á sama stað og hann var í fyrri tíð, og væri þá hægt að halda hinum gamla sal, hátíðarsalnum, og nemendur gætu verið í honum áfram. Ég játa, að þetta mundi verða mun kostnaðarsamara í byrjun en þótt ráðizt væri í að byggja nýtt skólahús, en held samt, að svo margir kostir fylgi því að geta geymt hið gamla hús, að ríkið ætti ekki að hika við að varðveita hið gamla hús, þótt nokkurt fé þurfi til að byrja með, og ég bendi hv. n. á það, er málið kemur til hennar til athugunar, að ég vænti þess, að hún sjái sér fært að taka málið til gaumgæfilegrar athugunar.