11.03.1947
Sameinað þing: 35. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í D-deild Alþingistíðinda. (5135)

291. mál, samvinna ísl. þegna við þjóðverja

Flm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. – Ég hef borið hér fram á þskj. 489 till. til þál. um skýrslusöfnun um mál þeirra íslenzkra þegna, sem sakaðir hafa verið um samvinnu við Þjóðverja í síðustu styrjöld gegn hagsmunum Dana og Norðmanna og hlotið fyrir það álitshnekki, margvísleg óþægindi, fangelsanir, frelsisskerðingar, misþyrmingar og líflát án dóms og laga. Þykir mér rétt að gera hér nokkra grein fyrir því, að ég tel rétt og skylt, að hv. Alþ. láti þetta til sín taka.

Eins og öllum almenningi er kunnugt, hertóku Þjóðverjar Danmörku og Noreg þann 9. apríl 1940. Sátu þeir með her í báðum þessum löndum, þar til í byrjun maí 1945, að þeir höfðu beðið fullan ósigur á öllum vígstöðvum.

Norska þjóðin veitti innrásarhernum snarpa mótstöðu, sem mun verða rómuð um aldir, en hún var brátt yfirunnin — þó tókst henni að koma konungi og stjórn úr landi og halda uppi stjórnarfarslegri andstöðu gegn hernáminu öll styrjaldarárin frá öðru landi. Heima fyrir tókst aldrei almenn samvinna milli þýzka hersins og norsku þjóðarinnar, heldur aðeins á milli hans og nokkurra kvislinga, eins og Norðmenn nefndu alla þá menn frá upphafi, sem samvinnu höfðu við Þjóðverja. Og stjórnin, sem sat í útlegð, notaði hvert tækifæri til þess að hvetja þjóðina til andstöðu og spellvirkja og studdi hana í því á allan hátt.

En þessu var allt öðruvísi farið með dönsku þjóðina.

Tveimur dögum áður en innrásin hófst, voru allar danskar hafnir fullar af friðsömum þýzkum verzlunarskipum af öllum stærðum. Þau áttu aðeins eitt sameiginlegt — þau voru öll hlaðin kolum á þilfari. Almenningur skildi ekkert í þessu, að skyndilega voru hundruð skipa frá ófriðarþjóð komin fyrirhafnarlaust inn í landið, og það var enn torskildara, hvað þjóðin ætti að gera við öll þessi kol. Tveim dögum síðar var blæjunni lyft. Þá streymdu þúsundir þýzkra hermanna upp úr lestum þessara sömu skipa, og þúsundir smálesta af hergögnum fylgdu á eftir. Samtímis svifu herflugvélahópar yfir landinu, en herbifreiðar og brynvarðir skriðdrekar æddu inn í það eftir vegunum. Svo að segja engin mótstaða var veitt innrásarliðinu, og sól var ekki fyrr á lofti þennan morgun en þjóðin fékk fyrirskipun frá æðstu stjórn landsins að sýna herliðinu kurteisi og vináttu í öllum viðskiptum og öllu viðmóti og forðast alla árekstra. Nú gekk þess enginn lengur dulinn, að varðmenn þjóðarinnar hlutu að hafa vitað um allan undirbúning, þótt ekkert væri að gert, og að samvinna og samúð með innrásarhernum og þýzku þjóðinni í heild þótti á þeirri stundu langsamlega æskilegasta framkoman vegna heiðurs og hamingju dönsku þjóðarinnar.

Tímarnir liðu og Þjóðverjar fóru sigurför með heri sína úr einu landi í annað. Því stærri sem sigur þeirra varð, því meiri grimmd sem þeir beittu varnarlausar þjóðir, því meira blóði sem þeir úthelltu, því háværari urðu fyrirmæli dönsku stjórnarvaldanna um að halda sem beztum friði við herinn þar í landi. Árangurinn varð líka sá, að hvergi var jafngott samkomulag á milli þýzka hersins og íbúanna og einmitt í Danmörku, enda notuðu Þjóðverjar þetta óspart í áróðri sínum, þar sem þeir ávallt og ævinlega bentu á Dani sem fyrirmyndarsambýlisþjóð.

Það var ekki fyrr en Þjóðverjar fóru að fara halloka í styrjöldinni, að sambýlið fór að versna. Fyrirbænir og fyrirskipanir stjórnarvaldanna hafa ekki lengur sama mátt og fyrr. Nú rísa upp frelsishetjur, sem verða æ fleiri, því meira sem hallar á ógæfuhlið þýzka hersins. Spellvirki og hefndarráðstafanir ganga á víxl, og stjórnin fær ekki við neitt ráðið, því að frelsishetjurnar hafa nú tekið að sér að stjórna landinu og verja heiður þess og hamingju. Tortryggni og hatur gýs upp á milli manna, sem eru með eða móti frelsishetjunum eða jafnvel aðeins hlutleysingjar í þessum hildarleik. — Þannig er ástandið í landinu að morgni þess 5. maí 1945, þegar kirkjuklukkurnar hringja frið yfir landið, friðinn, sem allur heimurinn hafði þráð í meira en fimm löng og erfið ár.

En sólin er ekki komin í hádegisstað — hljómur kirkjuklukknanna ekki þagnaður, þegar nýr ófriður dynur yfir, nýjar hörmungar hranna sig upp og falla yfir þjóðina með enn meiri þunga en nokkru sinni fyrr. Og það eru frelsishetjurnar, sem hafa forystuna. Þúsundir saklausra manna eru fangelsaðir og ákærðir fyrir samvinnu við Þjóðverja gegn hagsmunum þjóðarinnar. Þeir eru hæddir og hrjáðir, sumum er misþyrmt og aðrir líflátnir, og allt án dóms og laga. — Og enn réð stjórnin engu. Mennirnir, sem fengu kjarkinn til þess að rísa upp á móti óvininum í þann mund, sem honum var að blæða út, tóku sér þann rétt að gera allt í senn: að ásaka, dæma og fullnægja dómnum. Valdið og vopnið voru þeirra einu lög.

Íslendingar, búsettir í Danmörku, fóru ekki varhluta af þessu æði. Guðmundur Kamban rithöfundur var fyrsta fórnin. Þegar hann rís upp vopnlaus og varnarlaus og neitar að láta handtaka sig saklausan og fara með sig sem glæpamann, er hann fyrirvaralaust skotinn í augsýn dóttur sinnar. Öll meðferð á jarðneskum leifum hans, unz hægt var að fá þær afhentar, er þann veg, sem ekki sæmir menningarþjóð.

Næsta fórnin er 17 ára drengur, sonur Gunnars Hallssonar kaupmanns. Hann er hrifsaður hræddur og grátandi úr örmum móður sinnar, þar sem hann er einn með henni heima. Bænir hennar og fullyrðingar beggja um það, að barnið sé alsaklaust, fá engan hljómgrunn. Með byssum, beindum í hjartastað, er hann hrakinn upp á flutningabíl, meðal annarra sakborninga, og síðan er ekið með hópinn áleiðis á lögreglustöðina. Það er ekki verið að sýna þá mildi að fara stytztu leið eða þræða fámennustu göturnar. Nei, það er ekið götu úr götu, þar sem mannfjöldinn er mestur, og allan tímann eru þessi saklausu, óhamingjusömu fórnardýr villimennskunnar hrædd og hrjáð af fjöldanum. Þeim er fyrirskipað að þola allar raunir að viðlögðu lífláti, fyrirskipað að halda höndunum uppi yfir höfði sér tímunum saman. Það er sama, hvort kastað er í þá óþverra eða hrækt á þá, allt ber að þola möglunarlaust. Þegar drengurinn, magnþrota og yfirbugaður af slíkri meðferð, lætur annan handlegginn síga úr fyrirskipaðri stellingu, er hann skotinn til bana. Dögum saman fá foreldrarnir ekkert svar við fyrirspurnum um afdrif drengsins. Og það er hending ein. að lík hans finnst og þekkist innan um fjölda annarra, sem farið hefur verið með á sama hátt.

Nær heill tugur annarra Íslendinga er fangelsaður og frelsi sviptur um lengri eða skemmri tíma, þar á meðal Gunnar Hallsson ásamt eldri syninum. Munu báðir enn vera í haldi. Nokkrir eru sóttir um borð í Esju. Vikum og mánuðum saman er þeim haldið í fangelsi, án þess að mál þeirra fáist tekin fyrir og dæmd. Munu flestir þeirra hafa reynzt alsaklausir af öllum ákærum. Hef ég hér í höndunum framburð þessara manna. En sú saga öll er svo sorgleg og svo viðbjóðsleg, að ég tel það engan veginn sæmandi að lesa hér á hv. Alþ. dæmin, sem sýna gleggst, hvernig ástandið í þessum málum hefur í raun og veru verið. — Þó tel ég rétt að geta þess hér, að af þessum mönnum eru teknar myndir til geymslu fyrir glæpamannasafn Dana, þar sem þeir eru merktir alveg sérstaklega sem íslenzkir glæpamenn. Er að sjálfsögðu nauðsynlegt að fá þessi gögn afnumin úr eign þeirra og eyðilögð. — Þá er, eftir því sem mér er kunnugt um, einn Íslendingur fangelsaður fyrir það eitt, að hann hefur haft á hendi verkstjórn fyrir danska skipasmíðastöð, sem gerði við skip fyrir Þjóðverja. Í 111/2 mánuð er honum haldið í fangelsi: Öll meðferð á honum minnir á miðaldamenningu og miðaldagrimmd Þegar loksins tími er til að sannfærast um það, að maðurinn er alsaklaus, er hann látinn laus og þar með álitið, að réttlætinu sé fullnægt. Afsakanir eða bætur fyrir heils árs fangelsi, misþyrmingar og smán, virðast vera algert aukaatriði í hinu nýja réttarfari þessarar þjóðar, sem þó stóð einna fremst í allri menningu fyrir stríð.

Ég hef átt þess kost að kynnast persónulega öllum þeim gögnum, sem fyrir liggja í sambandi við ákæru á Guðmund Kamban.

Fyrrv. hæstv. utanrrh. mótmælti samstundis verknaðinum og fyrirskipaði sendiráðinu í Kaupmannahöfn að fá málið rannsakað og senda fullkomnar skýrslur hingað til stjórnarinnar um allan gang þess.

Í réttarfarsskýrslunni, sem send er dómsmrn. danska og er eitt auðvirðilegasta gagn, sem hugsazt getur í morðmáli, er gerð tilraun til þess að réttlæta verknaðinn með því, að upplýst þyki, að Kamban hafi haft samvinnu við Þjóðverja á eftirfarandi hátt — gegn hagsmunum dönsku þjóðarinnar:

1. Haldið fyrirlestra í danska útvarpið eftir 29. ágúst 1943.

2. Skrifað ritgerð um söl fyrir Þjóðverja 1944, sem gerði þeim mögulegt að seðja allan herinn og alla hina sveltandi Evrópu.

3. Og fyrir þessi glæpsamlegu störf hafi hann orðið uppvís að því að taka laun frá Þjóðverjum.

Í bók, sem kom út í Kaupmannahöfn 1945, um danska útvarpið á styrjaldartímabilinu, þar sem mjög hörðum orðum er farið um allan þann fjölda danskra þegna, sem þátt tóku í starfsemi þess eftir 29. ágúst, er þess getið, að Kamban hafi á árunum 1943–'45 haldið alls 3 fyrirlestra í danska útvarpið af 311 fyrirlestrum, sem haldnir eru þar á þessu tímabili af ekki færri en 100 vísindamönnum, listamönnum og öðrum andans mönnum dönsku þjóðarinnar. Öll þessi erindi Kambans voru eingöngu bókmenntalegs eðlis og fjarri því að fela í sér snefil af áróðri fyrir Þýzkaland, enda er beinlínis á það bent í þessari bók, að Þjóðverjum hafi þótt Kamban draga um of taum menningar Norðurlanda í erindum sínum, og þar með einnig menningar dönsku þjóðarinnar, og því hafi þeir orðið að strika út úr erindum hans ýmis ummæli, er snertu þetta efni.

Hvað viðvíkur þeirri ákæru, að Kamban hafi skrifað ritgerð um söl, þá er það rétt, að eitt af síðustu verkum hans er langt vísindarit um þessa sjávarplöntu. Ég hef átt þess kost að lesa þetta verk. Verður ekki annað séð en að hann hafi fyrst og fremst haft í huga að skrifa hér vísindarit, er hann síðar gæti varið sem doktorsritgerð við háskóla. Ritgerð þessi er þrungin af þeirri aðdáun, sem Kamban hafði á íslenzku þjóðinni fyrir þrautseigju hennar og þol að komast yfir alla þá erfiðleika, sem yfir hana dundu á mesta hörmungartímabili hennar, sem m.a. Danir áttu ekki svo lítinn þátt í að skapa, með verzlunareinokun, kúgun og skilningsleysi á högum hennar á þeim tímum. Einmitt vegna þess, að ritgerðin er byggð upp á hinum hárnákvæmu rannsóknum Kambans á þjóðlífi Íslendinga, verður hún hvort tveggja í senn, þrungið ádeilurit á dönsk stjórnarvöld þeirra tíma, og brennandi hvatningarorð til Íslendinga um það, að standa nú saman, unz fullkominn skilningur er fenginn. Hitt hefur víst engum manni dottið í hug í alvöru, og ekki einu sinni Dönum sjálfum, að þótt íslenzka þjóðin gæti fyrr á öldum forðað sér frá hungri að einhverju leyti með því að tína og éta söl á þeim tímum, þegar dönsk einokun og dönsk kúgun hafði sogið úr henni merg og blóð, að þá væri það leikur einn fyrir Þjóðverja, úr því að þeir ættu nú í ritgerð þessari lykilinn að leyndarmáli, að metta allan hinn sveltandi her og alla Evrópu á þessum einstæða sjávargróðri. Það reyndist líka svo, að eftir að rétturinn hafði kynnt sér þetta verk, þótti ekki stætt á því að nota það sem ásökunarefni.

Um þriðja og síðasta ákæruatriðið, að Kamban hafi tekið á móti fé frá Þjóðverjum fyrir verk sín, skal aðeins farið nokkrum orðum.

Í fyrsta lagi voru menn beinlínis hvattir til þess af stjórnarvöldunum að hafa vinsamleg viðskipti við herinn og þýzku þjóðina, eins og ég hef áður minnzt á. Meginhlutinn af iðnaði, landbúnaði og verzlun dönsku þjóðarinnar byggði bókstaflega tilveru sína á styrjaldarárunum á þessum viðskiptum og það svo, að án þeirra gat þjóðin á engan hátt framfleytt lífinu, svo lengi sem hernámið varði. Það gat því ekki verið meiri sök að taka greiðslu fyrir hlutlausar bókmenntir en fyrir svínslæri, smjör og að ég nú ekki tali um framleiðslu alls konar vopna í þágu hersins. En á þessu lifði þjóðin almennt.

Í öðru lagi voru það danskir áhrifamenn, sem beinlínis neyddu Kamban til þess að leita sér tekna hjá Þjóðverjum, sem aldrei voru þó meiri en svo, að þær dugðu ekki honum og fjölskyldunni nema að litlu leyti til að draga fram lífið í eitt ár.

Í aldarfjórðung hafði Kamban lifað og starfað í Danmörku, svo að segja óslitið. Flest verk sín hafði hann fengið gefin þar út, mörg af leikritunum tekin þar til sýningar á beztu leikhúsunum og sjálfur verið í þjónustu Dana sem leiðbeinandi um leiklist. Hann fór aldrei leynt með það allan þennan tíma, að hann var sannur Íslendingur, unni framar öllu öðru frelsi lands síns og mat heiður þess og gæfu framar öllu öðru. Langsamlega stærstu og flestu árekstrarnir, sem urðu á milli hans og danskra áhrifamanna, og þeir voru stundum hvorki fáir né smáir, stöfuðu af því, hversu fast hann hélt á rétti þjóðar sinnar og hversu mjög hann mat forna menningu hennar. Og því er það, að þegar íslenzkir stúdentar og menntamenn, búsettir í Danmörku, senda mótmæli gegn sambandsslitunum, sem lýst var hér yfir á Alþ. haustið 1943, að fram skyldu fara að l. 1944, þá var Kamban ekki í þeim hópi. Þvert á móti hóf hann þá baráttu í Danmörku fyrir skilnaðinum. Einmitt þá tekur hann sig til og þýðir úrval af ljóðum íslenzkra skálda yfir á danska tungu, eitt hið mesta snilldarverk og bókmenntaafrek, til þess að sýna dönsku þjóðinni, hversu föstum fótum menningin hafi jafnan staðið á Íslandi og standi enn. Hér eru þýdd 45 úrvalsljóð 11 frægustu skálda og andans manna þjóðarinnar. Það hefst á sálmi Hallgríms Péturssonar, „Allt eins og blómstrið eina“, og lýkur á einu af Kambans síðustu ljóðum, „Arinbjörn prestur“. — En nú bregður svo við, að fyrri útgefendur hans, sem biðu jafnan óþreyjufullir eftir hverri bók frá honum, vilja ekki gefa út þetta snilldarverk. Nú verður að leita til Einars Munksgaard og fá aðstoð frá Dansk-íslenzka félaginu til að koma bókinni út. Samtímis eru einnig lokuð fyrir honum öll leikhús, sem áður stóðu honum opin, og sambönd hans við menningarstofnanir, sem Danir réðu yfir, eru öll bókstaflega slitin. Eins og allir aðrir, er hann fangi í þessu landi, landi, sem neitar honum um að lifa, af því hann metur og elskar meira sína eigin þjóð en þá þjóð, sem hann dvelur með, og vill í engu skerða hennar rétt.

Af öllum þeim gögnum, sem fyrir liggja, er bert, að fram að þessum tíma hefur Kamban engin viðskipti haft við Þjóðverja. Það er ekki fyrr en eftir að allt þetta hefur skeð, að hann neyddist til þess að selja verk sín til þeirrar þjóðar, sem situr yfir rétti Dana. Honum er þetta mjög um geð, en ha~n á einskis annars úrkost, nema að draga úr baráttunni fyrir fullu frelsi þjóðar sinnar, og það er honum á engan hátt að skapi, svo heilsteyptur sem hann var.

Íslenzka þjóðin á kröfu á því að fá það að fullu upplýst, hvaða raunverulegar ástæður voru fyrir handtöku og vígi Kambans, hvort það er samvinna við Þjóðverja, ást hans á nazisma, löngun til að gera dönsku þjóðinni ógagn eða ást hans á Íslandi, þor hans og vilji til að halda hátt uppi merki þjóðar sinnar, þegar henni reið mest á. Hér á landi hefur danska stjórnin viðurkennt opinberlega, að engar ástæður hafi verið fyrir hendi, er réttlæti þennan verknað. Hér biður hún opinberlega afsökunar á óhappinu, eins og hún kallar það, og tilkynnir, að lífeyrir verði greiddur ekkju hans. Í Danmörku er þessu margneitað og almenningur þar látinn trúa því, að hann hafi verið sekur fundinn.

Það er báðum þjóðum hollast, að blæjunni sé svipt af öllum þessum málum og sannleikurinn gerður kunnur í báðum löndunum.

Ég hef heyrt því haldið fram, að Íslendingar í Danmörku hafi ekki orðið verr úti en sá stóri hópur danskra þegna, sem orðið hefur fyrir sömu meðferð af hálfu frelsishetjanna dönsku. Það kann vel að vera, að svo sé, en það er einkamál dönsku þjóðarinnar, hvernig hún gerir þau mál upp innbyrðis. Hitt er metnaðarmál vort og skylda að gæta réttar íslenzkra þegna og heiðurs þeirra lífs og liðinna.

Mér er aðeins kunnugt um einn íslenzkan þegn, sem beittur hefur verið frelsisskerðingu í Noregi og sakaður um glæp gegn norsku þjóðinni. Ég skal hér ekkert fullyrða um sekt hans eða sakleysi. En vegna þess, að mjög hefur verið dregið í efa, að málsmeðferðin gegn honum hafi farið að alþjóðalögum og verið norskum yfirvöldum til sóma, er sjálfsagt og skylt að fá einnig þetta mál að fullu upplýst. Í sambandi víð þetta vil ég geta þess, að mér hefur borizt sú fregn, að norski sendiherrann hér líti svo á, að í þáltill. felist ásökun í garð norsku þjóðarinnar fyrir líflát íslenzkra þegna án dóms og laga. Ég get ekki fallizt á þennan skilning, og þykir mér rétt að gefnu tilefni að taka hér fram, að þannig ber ekki að skilja till., enda sjálfsagt fyrir þá n., sem fær till. til athugunar, að breyta orðalagi þannig, að hún verði á engan hátt misskilin.

Íslendingar hafa verið fúsastir allra þjóða til þess að leggja fram sinn skerf til viðreisnar menningunni í Evrópu og til bjargar þeim, sem styrjöldin hefur sært og hrjáð. Þeir greiddu fyrstir allra þjóða sinn skerf til alþjóðahjálparstofnunarinnar, og þeir létu þau sorglegu atvik, sem ég hef lýst hér að framan, ekki hamla sér frá því að veita skjóta og drengilega hjálp þegnum þeirra þjóða, sem sök áttu hér á, og er það vel. En þess er þá einnig að vænta, að oss skorti ekki þrótt og drenglyndi til að halda uppi að fullu rétti þeirra þegna vorra, sem brotið hefur verið gegn, þótt af stærri þjóðum og voldugri sé.

Ég leyfi mér að leggja til, að þáltill. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. utanrmn., og vænti þess, að hún leggi til, að till. verði samþ., sem og, að hv. þm. allir geti einnig fallizt á það — og greiði henni atkv.