17.04.1947
Sameinað þing: 43. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í D-deild Alþingistíðinda. (5152)
293. mál, skattgreiðsla samvinnufélaga og Eimskipafélags Íslands
Flm. (Jónas Jónsson):
Mér þykir vænt um, að hv. 5. þm.. Reykv. lýsti því rétt, að nauðsyn er að Eimskipafélagi Íslands sé ekki íþyngt með skattaálögum, og hann er sammála mér um það, að verra væri, ef félagið væri alveg eignalaust, því að þá hefði það ekki fjármagn handbært til afnota, svo sem það þarf. En um samvinnufélögin gætti misskilnings, því að hann heldur, að gróði þeirra sé hliðstæður gróða kaupmannanna. Við köllum kaup okkar tekjur. En ef hv. þm. vildi lána mér, ef ég bæði hann um, þingmannskaup sitt og ég skila því svo aftur eftir hálfan mánuð, þá dettur engum í hug, að hann auðgaðist á því. Þessi sami munur er á gróða kaupmanna og samvinnufélaga. Það, sem kaupmaðurinn fær, er hans eign, en fé samvinnufélaga er það, sem hver félagsmaður borgar inn í það og á þar part af ári. Að leggja skatt á þetta fé væri ekkert annað en leggja tvöfaldan skatt á félagsmennina. Tilgangurinn með skattfrelsi Eimskipafélags Íslands er að láta það hafa peninga til skipakaupa. Einnig hjá samvinnufélögum verða peningarnir þýðingarmiklir og hægt að verja þeim til ýmissa nytsamlegra hluta. Í fyrra var samþ. hér á Alþ. að byggja stórt hótel. Nú verður það kannske ekki gert, af því að peninga vantar til þess, en allir yrðu fegnir, ef einstaklingur tæki sig til og reisti gistihús. En nú vill svo til, að K.E.A. hefur komið upp mjög góðu húsi, húsi, sem stendur næst Hótel Borg. Það gerði þetta fyrir fé félagsmanna sinna. Ef því hefði ekki verið leyft að hafa þetta fé, hefði Akureyri verið gistihúslaus. Samvinnufélögin geta því sparað ríkinu mikil útgjöld, ef rétt er að farið. En það var mjög ánægjulegt að heyra þessa rödd frá einum helzta stuðningsmanni kaupmannanna. Ég get ekki fallizt á, að till. þessi fari til fjvn., hér er ekki um fjárhagsmál að ræða, heldur almennt skipulagsmál.